Síminn er leiðandi fjarskiptafyrirtæki á Íslandi. Við teljum það ábyrgð okkar að starfsemi fyrirtækisins og þjónusta skili sér í sem mestum ávinningi fyrir einstaklinga og fyrirtæki, umhverfið og samfélagið allt.
Það er stefna Símans að huga að sjálfbærni í hvívetna og tryggja að markmið séu mælanleg og að væntingar til árangurs í sjálfbærni séu skýr fyrir starfsfólki Símans, viðskiptavinum, birgjum, hluthöfum og öðrum.
Síminn er stofnaðili Festu, miðstöð um sjálfbærni. Félagið fékk jafnlaunavottun árið 2018, fyrst allra fjarskiptafyrirtækja á Íslandi.
Síminn stuðlar að auknu kynjajafnrétti hjá Símanum með markvissum aðgerðum í Jafnréttisvísi og eyða kynbundnum launamun. Auk þess vinnur Síminn að menntun og þjálfun kvenna í tækni með háskólasamfélaginu.
Aukin stafvæðing, að gera sem flesta hluti stafræna og læsilega tölvum er nátengt starfsemi Símans. Við vinnum að þróun sjálfbærra og kolefnislágra innviða í fjarskiptageiranum og styðjum við íslenska máltækni.
Síminn vinnur að því að innleiða kolefnislága stafræna innviði sem hafa það að markmiði að draga úr umhverfisáhrifum Símans sem og þeirra sem nýta tæki og tækni Símans.
Við höfum hafið þá vegferð að rafvæða bíla sem starfsmenn Símans nota við vettvangsþjónustu. Nú þegar eru tveir rafmagnsbílar komnir í umferðina og fleiri munu bætast við eftir því sem endurnýjun á bílum kallar á. Notkun rafbíla er hluti af skuldbindingum Símans um að lágmarka losun gróðurhúsalofttegunda í rekstri fyrirtækisins.
Við erum að bjóða viðskiptavinum nýjan netbeini (e. router) sem styður nýjustu staðla þráðlausra neta og er gerður úr endurvinnanlegu plasti. Í samstarfi við erlendan birgja var pökkun búnaðarins breytt og gerð krafa um lágmarksnotkun á plasti. Búnaðinn setjum við svo kassa úr endurunnum pappa sem hægt er að endurvinna frekar.
Gömul tæki geta alltaf átt framhaldslíf. Í samstarfi við írska fyrirtækið Foxway Group geta viðskiptavinir Símans komið með gömul tæki og fengið inneign upp í ný. Foxway Group nær að endurvinna um 92% af öllum búnaði sem að til þeirra kemur og við styðjum þannig við hringrásarhagkerfið og tryggjum að verðmætir málmar, plast og fleira eignast framhaldslíf í öðrum tækjum.
Sjónvarpsþjónusta Símans, sem notuð er á tugþúsundum heimila á Íslandi, er í dag alfarin rekin úr skýinu og aflvætt með endurnýjanlegri orku. Með hýsingu sjónvarpsþjónustunnar í skýinu skapast ekki aðeins meiri rýmd til að efla og bæta þjónustuna eftir þörfum heldur skapast einnig töluverður orkusparnaður.
Hlutverk Símans er að skapa tækifæri. Í þeirri stafrænu umbreytingu sem samfélagið er að ganga í gegnum liggja tækifæri fyrir Símann að vera enn meira hreyfiafl til góðra verka.
Stefna Símans er að ráða, efla og halda hæfu og traustu starfsfólki. Lögð er áhersla á að skapa gott vinnu umhverfi með sterkri liðsheild, jöfnum tækifærum til þróunar, hvatningu til að sýna frumkvæði, opnum skoðana skiptum og góðri miðlun upplýsinga.
Síminn hefur sett sérstakar siðareglur birgja og byggja þær á UFS viðmiðum NASDAQ og eiga að stuðla að því öllum innkaupum sé hagað í takt við við sjálfbærnistefnu Símans. Birgjar leika stórt hlutverk í aðfangakeðju félagsins og Síminn gerir kröfu til allra sinna birgja um að þeir kynni sér og samþykki að fylgja þeirri sýn sem fram koma í siðareglum birgja.
Síminn setti af stað átaksverkefnið Reddum málinu í samstarfi við Almannaróm – miðstöðvar máltækni og Háskólanum í Reykjavík í nóvember 2021. Markmiðið var að safna sem flestum raddsýnum á íslensku sem fara í opinn gagnagrunn. Tæknin mun snerta á enn fleiri þáttum okkar daglega lífs í náinni framtíð og tal lausnir, að tala við tækin okkar mun verða enn algengara en í dag. Því er mikilvægt að við kennum tækjunum okkar að skilja íslensku svo við getum talað við tækin, og þau svarað okkur til baka á íslensku.
Alls söfnuðust 366.241 raddsýni í Reddum málinu en 350 fyrirtæki og stofnanir voru skráð til leiks.
Símamótið, stærsta fótboltamót landsins, er haldið á svæði Breiðabliks í Kópavogi og mæta fótboltastelpur af landinu öllu til að sýna hæfileika sína á vellinum og njóta samverunnar utan vallar. Bæði keppendur, fjölskyldur þeirra og vinir njóta Símamótsins til fulls og skapa saman ógleymanlegar minningar. Við sýnum fjölda leikja á Síminn Sport í beinni útsendingu til að aðdáendur sem ekki eiga heimangengt í Kópavoginn geti notið gleðinnar heima í stofu og keppendur geti horft á sig í sjónvarpinu og þannig fetað í fótspor átrúnaðargoða sinna og fyrirmynda.
Síminn starfar í samræmi við lög sem um starfsemina gilda og „Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja“, sem gefnar eru út af Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq. Stjórn mun reglulega fjalla um og fara yfir árangur Símans í þeim þáttum sem fram koma í stefnu þessari og aðgerðaráætlun í sjálfbærni.
Síminn mun tryggja að allt starfsfólk og samstarfsaðiliar vinni í samræmi við meginreglur og gildi sem koma fram í siðareglum Símans. Allt starfsfólk og stjórn Símans skulu árlega staðfesta fylgni við siðareglur með undirskrift sinni ásamt því að fræðsla um málefnið verður skyldufag hjá öllu starfsfólki.
Netöryggi er órjúfanlegur þáttur í starfsemi Símans og vernd gagna og persónuupplýsinga verður alltaf forgangsverkefni. Síminn tryggir vernd kerfa sinna, vara, allra gagna og upplýsinga með víðtækri fræðslu til starfsfólks ásamt því að tryggja að öll kerfi okkar uppfylli hæstu gæðakröfur.
Síminn leggur áherslu á að viðhalda góðum samskiptum við lykil haghafa með opnum samtölum um þróun, tækifæri og sjálfbærnitengdar áhættur. Sjálfbærni er síkvikt umfangsefni og með opnum samskiptum og þáttöku í sjálfbærni samfélaginu lærum við af öðrum og deilum því sem við höfum gert með öðrum.