Öruggt samband
Hraðar tengingar og öflug þjónusta fyrir fyrirtæki og starfsfólk þeirra, óháð staðsetningu.



Fjarskipti fyrir fyrirtæki
Við bjóðum stöðugar tengingar og öfluga farsímaþjónustu fyrir starfsfólk, hvar sem það er. Við tryggjum einfalt utanumhald, hámarksafköst og sveigjanleika fyrir allt fyrirtækið.

Öruggar netlausnir
Fyrirtæki þurfa netlausnir sem standast álag og breytilegar þarfir. Lausnir Símans eru hannaðar með öryggi, sveigjanleika og einfaldri stjórnun í huga. Við tryggjum traustar tengingar og veitum aðgang að sérfræðingum sem vakta og styðja þitt netumhverfi dag og nótt.
Fáðu ráðgjöfÁhyggjulaus rekstur
Síminn er viðurkenndur samstarfsaðili Fortinet og öflugt teymi vottaðra sérfræðinga okkar finna bestu lausnina fyrir þig, sjá um uppsetningu og rekstur á öllum netbúnaði svo þú getir einbeitt þér að þinni kjarnastarfsemi.
Sveigjanlegar og áreiðanlegar netlausnir
Uppsetning er sniðin að þínum þörfum og t.d. er hægt að tengja saman starfstöðvar í gegnum miðlægan eldvegg Símans ásamt öruggri tengingu við hýsingarþjónustur og gagnaver. Við stýrum netumferð og forgangsröðum gögnum þannig að þín mikilvægustu kerfi virki hnökralaust, jafnvel á álagstímum.
Netöryggi og varnir gegn netárásum
Miðlæg stýring netumferðar eykur öryggi þitt. DDoS-vörn Símans ver netkerfi þitt gegn álagsárásum, og miðlægur eldveggur greinir alla umferð innan sem utan fyrirtækisins og getur einangrað sýkt tæki til að koma í veg fyrir að óværa dreifi sér á milli tækja.
Traustar tengingar
Við hjálpum þér að velja þau netsambönd sem henta þér, hvort sem það eru IP net, 4G/5G tengingar eða samband yfir gervihnetti. Þannig er hægt að setja upp öruggt varasamband sem tryggir hámarks uppitíma.

Haltu viðskiptavinum upplýstum með SMS
Samskiptalausn Símans er símkerfi í skýinu frá Cisco. Öflug lausn sem sameinar símtöl, fundi, skilaboð og skjöl á einn stað. Þú getur svarað í tölvu, borðasíma eða farsíma og þannig geta vinnusímtöl fylgt þér, hvert sem er.

Samskiptalausnir í skýinu
Með samskiptalausn Símans fær fyrirtækið símkerfi í skýinu frá Cisco, einum þekktasta framleiðanda heims. Lausnin kemur með Webex, öflugri samvinnulausn sem sameinar símtöl, fundi, skilaboð og skjöl í einu forriti. Þú svarar símtölum í tölvu, borðsíma eða farsíma, og vinnusímtölin fylgja þér hvert sem er. Sama hvort þú ert á skrifstofunni, heima eða á ferðinni.
Fáðu ráðgjöfSímtöl og skiptiborð
Öflugt símkerfi í skýinu með öllum nútíma eiginleikum og þægindum. Með sveigjanlegum skiptiborðslausnum og hringihópum fá notendur góða yfirsýn yfir öll samskipti. Hægt er að sjá stöðu samstarfsfólks og stilla flutning símtala eftir þörfum til a
Samþætting við önnur kerfi
Samskiptalausnir Símans geta tengst vinsælum viðskiptavinakerfum (CRM) og þannig flæða upplýsingar á milli og samskipti verða einfaldari og markvissari.
Skilaboð og fjarfundir
Teymi geta átt hröð og örugg samskipti í gegnum skilaboð og haldið fjarfundi með hágæða hljóði, mynd og skjádeilingu. Allt fer fram í einu sameinuðu viðmóti sem dregur úr þörf á mörgum forritum og einfaldar daglega samvinnu.
Tölfræði, greining og upptökulausnir
Símkerfið veitir stjórnendum og þjónustuteymum nákvæma yfirsýn yfir símtöl, þjónustustig og svarhlutfall. Með skýrum skýrslum og greiningartólum er hægt að styðja við ákvarðanatöku og bæta frammistöðu. Lausnin býður einnig upp á upptöku og rauntímayfirlit sem tryggir stöðugleika og gæði í þjónustu.

Fyrirtækjakort Símans
Fyrirtækjakort Síminn Pay er nútímalegt kreditkort sem einfaldar útgjöld fyrirtækja með öruggri aðgangsstýringu, fullkominni yfirsýn og skilvirkari flokkun. Kortið er stafrænt og auðvelt er að stofna ný kort, til lengri eða styttri tíma. Ferlið er einfalt; taktu mynd, flokkaðu færsluna og hún bókast beint í bókhaldið.

Auglýsingalausnir
Auglýsingalausnir Símans bjóða ráðgjöf við sölu og birtingar í Sjónvarpi Símans og á umhverfismiðlum, þar á meðal í strætóskýlum og á LED-skjám víða um land. Reynslumiklir sérfræðingar hjálpa þér að koma skilaboðum á framfæri á hagkvæman hátt til réttra markhópa. Við nýtum gögn og nýjustu tækni til að birta auglýsingar þar sem þær hafa mest áhrif.