Snjallúr eru til margra hluta nytsamleg. Þau framlengja ekki aðeins snjallsímann yfir á úlnliðinn okkar heldur gera þau okkur kleift að gera margt án þess að hafa símann nálægt. Þannig er hægt að sjá tilkynningar frá símanum á úrinu, sjá hver er að hringja og stýra tónlistar og hlaðvarps afspilun.
Snjallúr eru ekki bara tilvalin til að hafa á sér flesta daga en líka á nóttunni því flest snjallúr geta mælt gæði og lengd svefns, fylgst með súrefnismettun og þannig gefið þér ágætis mynd af hvernig þú sefur alla jafna.
Tæknin getur líka hjálpað okkur að muna eftir hreyfingunni. Þau mæla skref og vegalengdir í daglegu lífi og minna okkur mörg hver á að standa kannski upp og hreyfa okkur aðeins.
Fyrir æfingar og önnur líkamleg átök skín stjarna snjallúranna samt hvað hæst. Þau geta mælt allar æfingar, hlaup og hvaðeina með mikilli nákvæmni. Fyrir hlaupa og hjólafólk mælum við með að nota úr með innbyggðu GPS svo vegalengdir og meðalhraði mælist hvað best.
Snjallúrin geta svo mörg nýst sem frábær æfingafélagi þannig að ekki þurfi að hafa símann í vasanum eða tösku. Mörg snjallúranna geta nefnilega haft lagalista frá Spotify inni á úrinu og tengst við þráðlaus heyrnartól. Það er því hægt að skilja símann eftir heima og henda sér í æfingagallann án þess að tapa gleðinni úr eyrunum.
