Þú heyrir tvo stutta tóna ef hringt er á meðan þú ert í símanum. Þá getur þú lokið símtalinu og svarað þeim sem er að hringja eða geymt viðmælanda þinn á meðan þú svarar. Með símtalavíxl er hægt að tala við viðmælendur til skiptis.
Notkun
Veldu R2 til að skipta á milli viðmælenda.
Tenging *43#
Aftenging #43#
Hafðu í huga að þú þarft að tengja þjónustuna ef þú vilt vera var við þegar hringt er í þig meðan þú ert að tala.
