Sjálfvirk svörun hentar vel fyrir ýmiskonar afþreyingar- og upplýsingaveitur. Uppköllum í 900-númer er vísað í sjálfvirkt svarkerfi eða talvél og undirnúmer því óþörf. Mannleg svörun - hér þarf alltaf að vísa 900-númerinu í undirnúmer sem viðkomandi þjónustuaðili svarar úr.
Þá þarf einnig að áætla hve mörg undirnúmer þarf fyrir þjónustuna. Ekki er hægt að vísa símtölum í 900-númer beint í GSM-númer, en viðskiptavinir geta hinsvegar nýtt sér símtalsfluting þegar þörf er á.
Ef þú hefur frekari spurningu þá sendu fyrirspurn til þjónustuversins eða hringdu í síma 800 7000, og við aðstoðum þig frekar. Þjónustuverið er opið frá 8 til 22 alla virka daga, og frá 10 til 22 um helgar. Neyðarnúmer 907-7000 er opið utan afgreiðslutíma Þjónustuvers.