1. Skilmálar þessir gilda þegar internet-, heimasíðu- og/eða tölvupóstþjónusta er keypt hjá Símanum. Sú þjónusta er nefnd einu nafni „þjónusta” í skilmálum þessum. Almennir skilmálar Símans um fjarskiptaþjónustu gilda þar sem ákvæðum þessara skilmála sleppir. Stangist ákvæði þeirra og ákvæði þessara skilmála á, skulu ákvæði þessara skilmála ganga framar.
2. Skilmálar þessir gilda frá og með 1. júlí 2010
3. Síminn reynir eftir fremsta megni að tryggja öryggi og trúnað viðskiptavina og gagna sem þeir kunna að geyma á búnaði Símans.
4. Síminn ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að orsakast í tengslum við notkun á þjónustu Símans, eða ef ekki er hægt að nota þjónustuna af einhverjum ástæðum.
5. Síminn ber ekki ábyrgð á því að hugbúnaður sem dreift er virki né heldur af tjóni sem uppsetning eða notkun hans kann að valda.
6. Viðskiptavinur ber sjálfur ábyrgð á að taka afrit af gögnum sem hann geymir á heimasvæði sínu. Síminn ber ekki ábyrgð á gögnum sem kunna að tapast eða skemmast og geymd eru á búnaði Símans.
7. Viðskiptavinur ber ábyrgð á notkun þjónustunnar, greiðslum vegna notkunar hennar og er jafnframt ábyrgur fyrir uppsetningu á hugbúnaði á eigin tölvubúnaði.
8. Skráður rétthafi tengingar telst ábyrgur fyrir því að þessum reglum sé fylgt. Ef skilmálar þessir eru brotnir getur það valdið tafarlausri og fyrirvaralausri lokun á þjónustunni.
9. Viðskiptavini er óheimilt að lána, samnýta eða gefa þriðja aðila upp lykilorð sitt. Viðskiptavinur ber sjálfur ábyrgð á því að synja óviðkomandi aðilum um notkun þjónustunnar.
10. Óheimilt er að nota aðgang annarra, þ.m.t. að reyna að komast yfir aðgangs- og lykilorð eða nota á annan hátt gögn eða samskipti sem tilheyra öðrum.
11. Óheimilt er að nota þjónustuna til að villa á sér heimildir í samskiptum, t.d. þegar sendur er tölvupóstur.
12. Óheimilt er að trufla eða skerða þjónustuna, eða á nokkurn hátt hafa áhrif eða reyna að hafa áhrif á notkun annarra viðskiptavina. Þá er óheimilt að nota þjónustuna til sendingar ruslpóstsendinga eða magnsendinga pósts sem ekki innihalda skilaboð sem sérstaklega er beint til móttakanda.
13. Óheimilt er að senda póst og gögn eða eiga samskipti sem getur valdið öðrum óþægindum eða miska (til dæmis hótanir, klám eða stolin gögn), brýtur gegn lögum, reglum eða almennu velsæmi eða til að brjóta á einhvern hátt gegn ákvæðum laga og reglna.
14. Óheimilt er að birta efni á heimasíðu viðskiptavinar eða á öðrum kerfum sem viðskiptavinir hafa aðgang að sem ekki er í samræmi við lög, reglur og almennt velsæmi, þ.m.t. efni sem er ærumeiðandi. Síminn áskilur sér rétt til að loka aðgangi án fyrirvara að heimasíðum sem nýttar eru til ofangreinds.
15. Viðskiptavinir skulu sýna öðrum tilitsemi og kurteisi á internetinu. Fylgja skal reglum sem gilda á spjallrásum (IRC).
16. Síminn áskilur sér rétt til þess að takmarka þjónustu til viðskiptavinar tímabundið fari erlent niðurhal umfram það gagnamagn sem innifalið er í áskriftarleið viðskiptavinar. Fari erlent niðurhal umfram innifalið gagnamagn áskilur Síminn sér rétt til þess að minnka bandvídd tengingar hans til útlanda. Síminn mun tilkynna viðskiptavini um slíkar þjónustutakmarkanir með tölvupósti.
17. Viðskiptavinum er óheimilt að nota þjónustuna á hvern þann hátt sem er til þess ætlaður að hafa áhrif á gjaldtöku eða komast hjá gjaldtöku, t.d. fyrir gögn sem sótt eru á internetinu.
18. Réttur viðskiptavinar til notkunar á netfangi sem Síminn hefur úthlutað honum fellur úr gildi 12 mánuðum eftir uppsögn á þjónustu. Að þeim tíma liðnum hefur Síminn heimild til að úthluta netfanginu að nýju til annars viðskiptavinar. Við uppsögn er gögnum sem geymd eru í pósthólfi eytt. Öllum gögnum sem tengjast öðrum þjónustum er einnig eytt, þ.m.t. þjónustum á borð við Safnið, gagnageymslu, vírusvörn, tölvuvara og heimasíðusvæði.
19. Nú nýtir viðskiptavinur ekki póstfang sitt og hefur t.d. ekki skoðað eða sótt póst í pósthólfið samfleytt í 12 mánuði og áskilur Síminn sér þá rétt til að loka póstfanginu. Er þá einnig öllum gögnum í pósthólfinu eytt. Skal póstfangið engu að síður vera frátekið fyrir rétthafa vilji hann virkja það á nýjan leik. Framangreint gildir ekki hafi viðskiptavinur ekki greitt fyrir þjónustuna.
20. Nú fær rétthafi úthlutað netfangi sem inniheldur nafn fyrirtækis sem skráð er í fyrirtækjaskrá eða vörumerkis sem nýtur vörumerkjaverndar eða annarra samsvarandi réttinda og getur Síminn þá að kröfu eiganda viðkomandi réttinda afturkallað úthlutun á netfanginu ef Síminn telur ljóst að rétthafi vissi eða mátti vita um að úthlutun netfangsins fæli í sér notkun á fyrirtækjaheitinu, vörumerkjarétti eða öðrum samsvarandi réttindum fyrirtækis eða einstaklings og færi því gegn betri rétti eiganda réttindanna.
21. Síminn áskilur sér rétt til að eyða gögnum viðskiptavinar ef reikningar hafa ekki verið greiddir samfellt í 4 mánuði.
22. Síminn áskilur sér rétt til að vernda viðskiptavini sína eftir bestu getu gagnvart fjöldapóstsendingum, ruslpósti, vírusum, blekkingum, óæskilegu efni, og öðrum óværum.
23. Síminn áskilur sér rétt til að senda viðskiptavinum póst, bæði bréf og tölvupóst með tilkynningum er varða þjónustuna.
24. Ef í ljós kemur að notkun viðskiptavinar felur í sér misnotkun á búnaði eða þjónustu Símans er Símanum heimilt að synja viðskiptavini um þjónustu um stundarsakir eða til frambúðar.