Hér getur þú skoðað hvort tiltekin síða sé hýst á Íslandi eða annars staðar. Niðurhal frá vefþjónum í útlöndum er gjaldskylt og það á bæði við um erlendar heimasíður og aðra erlenda vefþjóna, til dæmis þá sem eru notaðir við netleiki.
Gagnanotkun þín er mæld frá mánaðarbyrjun til mánaðarloka. Þú getur skoðað erlent gagnamagn sem þú hefur náð í fyrir þennan mánuð á þjónustuvef Símans. Ef þú ert í tölvu sem er tengd viðkomandi netáskrift, þá er ekki krafist innskráningar.
Sem stendur er ekki hægt að fletta upp lénum með íslenskum stöfum.