Tónlist.is

Vantar þig aðstoð

Ef þú hefur spurningar varðandi Tónlist.is, til dæmis spilun lagalista eða innskráningu, þá skaltu senda þær til info@tonlist.is og þér verður svarað eins fljótt og auðið er. Einnig geturðu hringt í þjónustusíma Tónlist.is, síma 591-5200, sem er opin virka daga milli kl 10-12.

Sértilboð að Tónlist.is er fyrir þá, sem eru með: GSM áskrift, Mitt Frelsi (gildir ekki fyrir skafkort og heimabanka og hraðbankaáfyllingar), eða Internet (gildir ekki fyrir Grunnáskrift) hjá Símanum.

Spurt og svarað

Get ég fengið áskrift þó ég sé þegar áskrifandi að Tónlist.is og er viðskiptavinur Símans?  (slóð)

Svar

Sendu póst með upplýsingum um reikninginn þinn á info@tonlist.is og þú færð svar innan skamms.


Get ég notað GSM símann minn til að hlusta á Tónlist.is?  (slóð)

Svar

Tónlist í símanum er hluti af 3G þjónustu Símans og er möguleiki í nær öllum 3G símtækjum.

Til að nýta þjónustuna þarf að hafa 3G símtæki, 3G símkort og vera inni á 3G neti Símans.

Til að geta hlustað á tonlist.is þarf símtækið að styðja XHTML markup og 3GPP streymi, skilyrði sem flestir nýir 3G símar uppfylla.

Einnig er frábært Tónlist.is App (smáforrit) til fyrir Android og iPhone snjallsíma, sem er fáanlegt á 0 kr. Forritamörkuðum Android og iPhone.

Hægt er að fá nánari upplýsingar í næstu verslun Símans eða í síma 800 7000.


Greiði ég fyrir gagnamagn þegar ég er að streyma tónlist á Tónlist.is?  (slóð)

Svar

Þegar þú streymir eða hleður niður tónlist í gegnum farsímann er tekið af inniföldu gagnamagni, hvort sem það er innlent eða erlent. Vakin skal athygli á því að þegar notendur eru með snjallsíma sem er með þráðlausri tengingu (WiFi) og hún er til staðar, er ekki tekið af inniföldu gagnamagni í farsíma.


Hvað á ég að gera ef ég ef númerið mitt er nú þegar skráð?  (slóð)

Svar

Sendu póst með upplýsingum um reikninginn þinn á info@tonlist.is og þú færð svar innan skamms.


Hvað á ég að gera ef ég er búinn að gleyma notendanafni eða lykilorði?  (slóð)

Svar

Ef þú hefur gleymt lykilorði eða notendanafni getur þú fengið það sent hérna.

Þú getur einnig sent póst á info@tonlist.is.


Hvað á ég að gera ef ég get ekki spilað lagalistann minn?  (slóð)

Svar

Sendu póst með upplýsingum um reikninginn þinn á info@tonlist.is og þú færð svar innan skamms.


Hvað á ég að gera ef ég kemst ekki inn á Tónlist.is?  (slóð)

Svar

Þegar þú virkjaðir áskriftina þín þá valdirðu notendanafn og lykilorð sem að á að nota til innskráningar á Tónlist.is.

Ef notendanafnið og lykilorðið er ekki að virka sendu þá fyrirspurn á info@tonlist.is og þú færð svar innan skamms.

Aðrir vefir