Netvarinn

Netvarinn

Útilokaðu óæskilegt efni á internetinu

Með Netvaranum fær heimilið öflugt tæki til að útiloka óæskilegt efni á netinu og koma þannig í veg fyrir að börn og unglingar villist þangað sem þau eiga ekki erindi. Auk þess sem Netvarinn er góð viðbót við hefðbundnar vírusvarnir. Ef þú ert með internetáskrift hjá Símanum þá býðst þér Netvarinn án aukagjalds.

Lesa Netheilræði SAFT

Sía 1

Lokar fyrir síður sem innihalda barnaklám, njósnaforrit og vefi sem villa á sér heimildir eða sem gætu stolið persónuupplýsingum.

nánar um Síu 1
Efni Lýsing
Njósnaforrit
(e. spyware)
Fylgst er með netnotkun viðkomandi til að komast yfir viðkvæmar upplýsingar eins og lykilorð og kortanúmer, eða hlera samskipti tölvunnar. Dæmi um slík forrit eru „keyloggers“ og „bot networks“.
Vefveiðar
(e. phishing)
Aðferð svikahrappa til að fá netnotendur til að gefa upp viðkvæmar upplýsingar, til dæmis kortanmúmer, með blekkingum.
Óumbeðin virkni hugbúnaðar
(e. potenially unwanted software)
Vefir sem beita brögðum til að hafa áhrif á virkni vélbúnað, hugbúnað eða nettengingu viðkomandi.

Sía 2

Lokar fyrir efni sem skilgreint er í síu 1. Útilokar einnig klámfengið efni, upplýsingar um eiturlyf, fjárhættuspil, efni sem inniheldur hatur, kynþáttafordóma, smekkleysu, ofbeldi eða ólöglegt efni.

nánar um Síu 2
Efni Lýsing
Klámfengið efni Vefsvæði sem birta myndir af kynlífsathöfnum eða kynlífi, þ.m.t. sýnihneigð; einnig vefsvæði sem bjóða beina tengla inn á slík vefsvæði. Nær einnig til vefsíðna sem birta myndir af nöktum eða hálfnöktum mannslíkömum, einum og sér eða í hópum.
Fjárhættuspil Vefsvæði sem veita upplýsingar um eða hvetja til fjárhættuspila eða styðja fjárhættuspil á netinu, þar sem hætta er á að tapa peningum.
Smekkleysa Vefsvæði sem eru móðgandi eða yfirgengileg en ekki ofbeldisfull eða ógnvekjandi. Felur í sér vefsvæði sem fjalla að hluta eða í heild sinni um saur og svipað efni eða óviðeigandi málfar, grín eða hegðun.
Ofbeldi Vefsvæði sem birta eða hvetja til ofbeldis eða líkamsmeiðinga, þ.m.t. sjálfsáverka; birta myndir af dauða, blóðsúthellingum eða slysum; eða myndir og lýsingar sem eru grófar eða ógnvekjandi og hafa ekkert uppbyggjandi gildi í sjálfu sér.
Ólöglegt eða vafasamt Vefsvæði sem veita upplýsingar um eða hvetja til glæpa án ofbeldis eða siðlausrar eða óheiðarlegrar hegðunar, eða hvernig á að komast hjá lögsókn vegna slíkrar hegðunar.

Sía 3

Lokar fyrir efni sem skilgreint er í síu 1 og síu 2, auk þess að loka fyrir leiki, skráardeilisíður (P2P) og síður sem aðstoða við tölvuglæpi.

nánar um Síu 3
Efni Lýsing
Leikir Vefsvæði sem veita upplýsingar um hlutverkaleiki eða netleiki. Fela einnig í sér getraunir og kynningar.
Tölvuinnbrot Vefsvæði sem veita upplýsingar um eða hvetja til ólöglegs aðgengis eða notkunar á tölvum eða samskiptabúnaði, hugbúnaði eða gagnagrunnum.