Tölvusíminn - leiðbeiningar

Hægt er að velja mismunandi sýnir af Tölvusímanum og hér fyrir neðan má sjá tvær útgáfur. Helsti munurinn er að önnur hefur bæði takkaborð og símaskránna en hin er einungis með símaskránna.

Hnapparnir

Þegar símtal er að hefjast

Notkun Tölvusímans

Að hringja
Til að hringja, er númerið valið á takkaborðinu og ýtt á græna hnappinn.
Einnig er hægt að nota lyklaborðið, og er þá númerið slegið inn í reitinn undir „Enter name or number“ og ýtt á enter.
Til að slíta samtali er ýtt á rauða hnappinn á símanum,  eða Escape hnappinn á lyklaborðinu.

Myndsímtal

Möguleiki er að hringja myndsímtal í annað númer sem notar Tölvusíma Símans.  Að minnsta kosti annar aðilinn verður að vera með vefmyndavél svo þetta sé mögulegt.  Velja skal annað hvort áður en hringt er eða í miðju símtali.  Við það opnast annar gluggi sem sýnir mynd af þér og/eða hinum aðilanum.

Aðrir möguleikar

Stillingar Tölvusímans

Þegar búið er að ýta á preference þá fáum við þennan glugga upp.  

Í Application eru möguleikar á að velja hvort Tölvusíminn ræsist sjálkrafa þegar kveikt er á windows eða ekki.  Möguleiki á að velja hvort hringing eigi að fara sjálfkrafa af stað þegar búið er að velja símanúmer.  Einnig er hægt að velja hvort Tölvusíminn eigi að vera svartur eða grár, endurræsa þarf símann til að fá annan lit.

Vinsamlega athugið! Troubleshooting - Diagnostics  er ekki virkur í tölvusímanum.



Svaraði þetta spurningunni þinni?

Ef þú hefur frekari spurningar þá sendu þær til Þjónustuvers Símans eða hringdu í síma 800 7000, og við aðstoðum þig frekar. Þjónustuverið er opið frá 8 til 22 alla virka daga, og frá 10 til 22 um helgar. Neyðarnúmer 907-7000 er opið utan afgreiðslutíma Þjónustuvers.

Aðrir vefir