Þráðlaust sjónvarpstengi er fyrirferðalítill búnaður sem nýtir rafmagnslagnir heimilis fyrir flutning sjónvarpsmerkis innan heimilisins, og er því óþarfi að tengja snúrur milli ADSL beinis og myndlykils.
Þráðlausu sjónvarpstengin eru fullkomnlega örugg gegn óviðkomandi aðgangi. Á þeim er læsing (DESpro dulkóðun) sem tryggir að sambandið sé öruggt. Ekki þarf að setja tengin upp né samtengja til að tryggja öryggi.
Með þráðlausum sjónvarpstengjum getur búnaður verið í allt að 200 metra fjarlægð. Þú getur því horft á sjónvarp um ADSL hvar sem er á heimilinu.

Þú finnur helstu spurningar og svör tengt notkun á Sjónvarpi Símans inná Aðstoð.