Forgangsröðun gagna

Tölvukerfi, símkerfi og hugbúnaður fyrirtækja gera mismiklar kröfur til gæða gagnaflutnings. Sum kerfi eru viðkvæm fyrir töfum en önnur mega vel við þeim. Síminn býður því viðskiptavinum sínum að forgangsraða gögnum.

Forgangsröðun gagna gerir fyrirtækjum kleift að velja hvaða samskipti eða rekstrarkerfi mega ekki verða fyrir töfum og má þannig láta þau samskipti sem eru síður háð tíma víkja fyrir rauntímagögnum. Þetta opnar til dæmis möguleika á að samnýta tal- og gagnaflutning um sömu tengingu þar sem hægt er að tryggja gæði talsambands. Forgangsröðun gagna tryggir því að hægt er að nýta bandvídd betur en ella.

Cisco Powered vottun

Cisco vottun

Síminn er eini IP þjónustusali á Íslandi sem hefur Cisco Powered vottun.

Meira um Cisco Powered vottun

Komdu til okkar

Vertu í hóp ánægðra viðskiptavina hjá Símanum. Hringdu í síma 800 4000 eða sendu fyrirspurn.

Senda fyrirspurn