Þjónusta

Í VIST hafa fyrirtæki aðgang að sérfræðingum Símans, allan sólarhringinn. Eftirlit Símans vaktar tölvukerfin, tryggir kjöraðstæður og bregst við á svipstundu ef eitthvað fer úrskeiðis.

800 4000 - Eitt númer fyrir alla þjónustu.

Þjónustuborð

Fyrirtæki í VIST hafa aðgang að miðlægu þjónustuborði Símans í 800 4000. Á þjónustuborði er aðstoð veitt í gegnum síma, þar sem vandamálin eru greind og viðeigandi lausn fundin. Málin eru leyst símleiðis með því að yfirtaka tölvuna með samþykki viðkomandi eða að sérfræðingar Símans mæta á staðinn. Ýmist er hægt að gera fasta þjónustusamninga þess efnis eða greiða hóflegt gjald fyrir hverja heimsókn.

Vinnustaðaþjónusta

Vinnustaðaþjónusta felur í sér viðveru rekstrarþjónustumanns sem aðstoðar notendur og sinnir viðhaldi á vinnustöðvum. Þjónustan getur verið frá nokkrum klukkutímum á viku upp í fasta viðveru á staðnum alla daga vikunnar.

Vöktun Símans

Síminn býður fyrirtækjum að vakta tölvukerfi þeirra allan sólarhringinn. Ef villuboð koma upp eru skilaboð þess efnis send á fyrirfram skilgreinda aðila, annað hvort með tölvupósti, SMS eða talhólfsskilaboðum.

Ekki er nauðsynlegt vera með Internettengingu til þess að nýta sér vöktunina hjá Símanum en með beintengingu gefst færi á aukinni þjónustu, eins og að eftirlitsmenn grípi inn í þegar vandkvæði koma upp.

Eftirlit Símans byggir meðal annars á BigBrother neteftirlitskerfinu sem er hannað til að vakta tölvukerfi fyrirtækja í rauntíma. Notendum eða tengiliðum viðskiptavina gefst kostur á að skoða upplýsingar frá eftirlitskerfinu í rauntíma í gegnum vafra þegar þeim hentar. Viðskiptavinir geta fengið skýrslur mánaðarlega þar sem fram koma helstu upplýsingar um hvernig rekstur tölvukerfa þeirra hefur gengið.

Bakvaktarþjónusta

Síminn býður viðskiptavinum sínum aðgang að vakt- og neyðarþjónustu allan sólarhringinn. Kallvaktin er sérstaklega hentug fyrir þau fyrirtæki sem starfa utan hefðbundins dagvinnutíma og þurfa að treysta á virkni tölvukerfa sinna til að geta starfað. Auk þess eykst krafan um aðgengi að tölvuþjónustu allan sólarhringinn með sveigjanlegri vinnutíma starfsfólks. Kallvakt Símans greinir verkefni og leysir úr þeim í gegnum síma eða tölvusamband og sér um að senda rekstarþjónustumann á staðinn ef þörf krefur.




Vefhlutar

Aðrir vefir