
Jólasalan jafngóð nú og fyrir jólin 2007
29.12.2011Snjallsímar voru mestseldu símarnir hjá Símanum fyrir þessi jól eða 67% allra seldra tækja. Þegar fjöldi seldra síma er skoðaður samanborið við síðust ár kemur í ljós að jafnmargir símar seldust nú og árið 2007 og ennfremur var meðalverð þeirra síma sem seldust mest fyrir þessi jól u.þ.b. tvöfalt hærra miðað við árið 2007.

Hlutastörf í úthringiveri Símans
29.12.2011Nú ætlum við að bæta við í úthringiverið okkar. Um er að ræða hlutastarf á kvöldin sem að hentar fullkomlega fyrir námsfólk

Ekkert gjald á jóldag úr heimasíma viðskiptavina Símans í alla síma erlendis
25.12.2011Síminn býður öllum viðskiptavinum sínum sem eru með heimasíma að hringja til útlanda án endurgjalds í dag, jóladag. Gildir einu hvort hringt er í heimasíma eða farsíma í útlöndum.

Mæðrastyrksnefnd þakkar ómetanlegan stuðning
23.12.2011Mæðrastyrksnefnd hefur sent Símanum þakkarbréf þar sem hún þakkar ómetanlegan stuðning við starfssemina. Starfsmenn Símans, Skipta og Mílu hafa síðustu daga aðstoðað við úthlutun. Síminn gaf Mæðrastyrknefnd og Fjölskylduhjálpinni samtals 3 milljónir króna í Frelsiskortum núna fyrir jól.
Síminn styrkir Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálp Íslands um 3 milljónir króna
06.12.2011Síminn mun styrkja Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálp Íslands fyrir þessi jól eins og hefð er fyrir. Styrkurinn frá Símanum felst í því að gefa Frelsiskort að andvirði 3 milljónum króna og fá hvor samtök 1,5 milljón. Skjólstæðingar nefndarinnar fá Frelsiskortin afhend með matargjöfum, hvert með 2000 kr. farsímainneign.

Verðbreytingar hjá Símanum
30.11.2011Síminn breytir verði á þjónustu sinni frá og með 1. janúar 2012.

Síminn setur þak á gagnanotkun í reiki um allan heim
30.11.2011Síminn hefur nú sett þrepaskipt þak um allan heim á gagnanotkun viðskiptavina sinna sem nota farsíma á ferðalögum. Þetta þýðir að lokað er á gagnanotkun viðskiptavina Símans sem staddir eru erlendis þegar hún er komin upp í 10 þúsund krónur.

Domino‘s á Íslandi og Síminn endurnýja þjónustusamning
24.11.2011Síminn hefur síðustu ár veitt Domino‘s á Íslandi fjarskiptaþjónustu og nú hafa fyrirtækin endurnýjað þjónustusamning til þriggja ára.
Rof eða truflanir á fastlínu og farsímaþjónustu í nótt
14.11.2011Vegna endurnýjunar á örbylgjubúnaði á Hnjúkum við Blönduós má búast við rofi og truflunum á fastlínu- og farsímaþjónustu í nótt milli klukkan eitt og sex.

Truflanir vegna vinnu við að bæta GSM dreifikerfi Símans
01.11.2011Vegna vinnu við að bæta GSM dreifikerfi Símans og auka rekstraröryggi þess mun Síminn gera breytingar aðfaranótt fimmtudagsins 3. nóvember.
