"Ákveðið hefur verið að samræma og hækka verð á sundurliðun símtala sem fylgir símareikningum. Eftir 1. jan 2001 verður mánaðarverð þessarar þjónustu 110 krónur. Það gildir fyrir alla sundurliðun vegna talsímanotkunar og farsímanotkunar, bæði NMT og GSM í reikningsviðskiptum.
Síðastliðinn föstudag samþykkti Síminn kauptilboð í hluta eignarlóðar sinnar í Gufunesi, Smárarima 1. Kaupandinn var Byggingafélagið Viðar ehf. og var kaupverðið kr. 240 milljónir.
Ljóst er að ástæðan fyrir því að allt Internetsamband um sæstrenginn Cantat-3 til Norður-Ameríku lá niðri í um tvo klukkutíma í gær var að ljósgjafi í magnara miðja vegu á milli Íslands og Kanada, slökkti á sér af óþekktum ástæðum.
"Fastagjald heimilissíma hækkaði um nýliðin áramót um 248 krónur á mánuði. Gjaldið var 820 krónur en er nú 1.068 krónur á mánuði. Fastagjald atvinnusíma hækkaði á sama tíma um 238 krónur á mánuði. Önnur símagjöld, svo sem mínútugjald, breytast ekki.
Póst- og fjarskiptastofnun hefur samþykkt breytingar á verðskrá hjá 118 og talsambandi við útlönd. Breytingarnar taka gildi í dag. Meðalsímtal við 118 er 32 sekúndur og mun það kosta 53,50 krónur en kostar nú kr. 41,50.
Forsvarsmenn Símans og bandaríska fyrirtækisins iDigi skrifuðu undir samning í vikunni um tilraunaverkefni á sviði þráðlausra Internettenginga fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Nú í janúar voru vinningshafar í jólaleik Símans dregnir út. Gunnar Hermannsson á Hornafirði hlaut fyrsta vinninginn, Gateway 800 pentium III tölvu og var hann að vonum ánægður með hann.
Afnotagjöld af boðkerfi Símans verða felld niður frá og með 1. febrúar nk. en notendur greiða áfram fyrir notkun, þ.e. fyrir hvert uppkall, á sama hátt og verið hefur. Þetta er liður í því að ákveðið hefur verið að loka boðkerfinu en ekki hefur verið ákveðið hvenær þjónustunni verður endanlega lokað.