Fréttir

17.01.2012 | 15:52

Gagnleg úttekt sem skýrir reglur á fjarskiptamarkaði

Síminn fellst á úrbótatillögur Póst- og fjarskiptastofnunar í kjölfar úttektar óháðs aðila á samskiptum smásölu og heildsölu og notkun umferðarupplýsinga hjá fyrirtækinu. Síminn telur ábendingar um úrbætur vera gagnlegar og lið í að gera enn betur. PFS birtir úrbótartillögurnar og ákvörðun sína á vef stofnunarinnar í dag. 

Ennfremur er úttektin til þess fallin að skýra reglur á fjarskiptamarkaði sem varða notkun umferðarupplýsinga.
Síminn hefur þegar farið í að bæta ferla og að einhverju leyti endurspegla þær aðgerðir þessar úrbótatillögur. Fyrirtækið hefur upplýst Póst- og fjarskiptastofnun um að vinnunni verði hraðað en frestur sem óskað var eftir verður nýttur til þess að innleiða úrbæturnar og festa þær í sessi í þeim tilgangi að styrkja skipulag og ferla ennfrekar hjá Símanum. Sjá ákvörðun PFS hér.


« Til baka

Aðrir vefir