Athugið
Vinsamlega athugið að þessi grein tilheyrir fréttasafni Símans, og er orðin meira en árs gömul.Efnislegt innihald greinarinar gæti því verið úrelt eða ekki í samræmi við þjónustuframboð Símans í dag.
Málþing um örugga netnotkun
HUGSAÐU ÁÐUR EN ÞÚ SENDIR er yfirskrift málþings sem SAFT verkefnið um örugga netnotkun barna og unglinga stendur fyrir í tilefni alþjóðlega netöryggisdagsins 9. febrúar.
Málþingið verður öllum opið og verður haldið í Skriðu, aðalbyggingu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands v/Stakkahlíð, kl 14.30-16.30.
Málþingið verður sent beint út á netinu. Þeir sem fylgjast með á netinu geta sent fyrirspurn á pallborð með því að senda tölvupóst á gudberg@saft.is.
