Athugið
Vinsamlega athugið að þessi grein tilheyrir fréttasafni Símans, og er orðin meira en árs gömul.Efnislegt innihald greinarinar gæti því verið úrelt eða ekki í samræmi við þjónustuframboð Símans í dag.
Síminn gefur gervihnattasíma og tjöld til Rauða Krossins
Sex íslenskir hjálparstarfsmenn fóru til Haíti nú um helgina að beiðni Alþjóða Rauða krossins. Mánuður er nú liðinn frá því jarðskjálftinn mikli reið þar yfir, og hefur Alþjóða Rauði krossinn hækkað neyðarbeiðni sína úr 12 milljörðum íslenskra króna í 25 milljarða.
Af þessu tilefni óskaði Rauði Kross Íslands eftir því að fá til ferðarinnar gervihnattasíma frá Símanum. Síminn brást skjótt við og færði þeim hann en auk þess útvegaði Síminn 10 kúlutjöld fyrir hjálparstarfsmenn í þeirri uppbyggingu sem framundan er. Rauði kross Íslands hefur nú sent 12 hjálparstarfsmenn til starfa á Haítí.

Sendifulltrúi Rauða Krossins á Haiti.
