Fréttir

19.02.2010 | 11:12

Athugið

Vinsamlega athugið að þessi grein tilheyrir fréttasafni Símans, og er orðin meira en árs gömul.
Efnislegt innihald greinarinar gæti því verið úrelt eða ekki í samræmi við þjónustuframboð Símans í dag.

Síminn styður við frumkvöðla

Highslide JS

Síminn styður við frumkvöðla sem taka þátt í Gullegginu sem gull-samstarfsaðili Innovit. Markmiðið með keppninni er að hjálpa hugmyndum að verða að veruleika. Gulleggið hefur verið haldið árlega síðan 2007 og er metþátttaka í ár en 295 viðskiptahugmyndir bárust í keppnina.

Hluti af samstarfinu við Innovit er að veita þátttakendum í keppninni aðgang að reynslu og þekkingu Símans í markaðs- og sölumálum.  Þátttakendum var boðið sl. laugardag á námskeið hjá Símanum og mættu hingað tæplega 80 manns sem keppast nú við að byggja upp raunhæfar áætlanir og að fá innsýn í hverjir eru lykilþættir árangurs í stofnun nýrra fyrirtækja.

Námskeiðið heppnaðist mjög vel og vildu aðstandendur keppninnar meina að þetta væri veglegasta námskeiðið sem haldið hefur verið í keppninni. Þátttakendur voru mjög áhugasamir um það efni sem var kynnt fyrir þeim og nýttu tækifærið til að ræða við starfsfólk Símans á eftir og fá ráðleggingar varðandi sín verkefni. Meðal efnis sem var kynnt var Scrum aðferðafræðin í verkefnastjórnun, Sölutækni sem er nýtt á Fyrirtækjasviði og Ring-ferlið, frá hugmynd að vöru.

Þátttakendur í Gullegginu þurfa að skila inn fullmótaðri viðskiptaáætlun fyrir 8. Mars nk. og þá mun hópur fólks út atvinnulífinu rýna verkefnin þeirra. Fyrir hönd Símans munu Ása Rún Björnsdóttir, Ásta Nína Benediktsdóttir og Kristinn Ingi Lárusson vera hluti af Rýnihópnum og taka þátt í að velja 10 bestu viðskiptaáætlanirnar. Þátttakendur munu sjálfir kynna 10 bestu viðskiptaáætlanir fyrir dómnefnd þann 10. Apríl nk. og á Sævar Freyr sæti í þeirra dómnefnd.


« Til baka

Aðrir vefir