Fréttir

16.08.2010 | 09:09

Athugið

Vinsamlega athugið að þessi grein tilheyrir fréttasafni Símans, og er orðin meira en árs gömul.
Efnislegt innihald greinarinar gæti því verið úrelt eða ekki í samræmi við þjónustuframboð Símans í dag.

NMT-kerfinu endanlega lokað 1. september nk.

Þann 1. september nk. mun Síminn hætta rekstri NMT-kerfisins sem í áratugi hefur þjónað öryggishlutverki bæði til sjós og lands. Í ljósi þessa hefur Síminn ráðist í umfangsmikla uppbygginu 3G farsímakerfis ásamt því að bæta hefðbundna GSM-kerfið mikið. Þrátt fyrir mikla útbreiðslu nýju kerfanna er ekki tryggt að samband verði á öllum svæðum sem nú njóta NMT-þjónustu en með réttu vali á búnaði má minnka eyður þar sem ekki næst samband.

Almennir NMT-notendur

Við viljum benda almennum NMT-notendum á að flytja þjónustu sína yfir í hið nýja 3G kerfi Símans og fá þannig aðgang að öllum nýjum tal- og gagnaflutningsmöguleikum sem þar bjóðast. Með 3G korti frá Símanum fá viðskiptavinir sjálfkrafa aðgang að almenna GSM-kerfinu en saman mynda þessi farsímakerfi langstærsta og öflugasta dreifikerfi landsins.
Verslanir Símans um allt land veita viðskiptavinum ráðgjöf um rétt val á áskrift og búnaði.

Sjómenn

Til að tryggja sjómönnum við strendur landsins góða og örugga farsímaþjónustu eftir lokun NMT-kerfisins hefur Síminn farið í viðamikla uppbyggingu á langdrægu 3G kerfi sem veita á sjómönnum aðgang að tal- og gagnaflutningsþjónustu, svipaða þeirri sem almennir viðskiptavinir í landi njóta. Langdrægu 3G sjósendarnir eru lokaðir öðrum en þeim sem hafa sérstaka SJÓ-Sambands áskrift. Þeir sem kaupa slíka áskrift fá einnig aðgang að öllum almennum 2G og 3G sendum í landi. Í samstarfi við Radíómiðun býður Síminn allan þann búnað sem sjómenn þurfa til að tryggja gott og öruggt samband, m.a. útiloftnet, beina og annan símabúnað.


« Til baka

Aðrir vefir