Fréttir

01.09.2010 | 13:36

Athugið

Vinsamlega athugið að þessi grein tilheyrir fréttasafni Símans, og er orðin meira en árs gömul.
Efnislegt innihald greinarinar gæti því verið úrelt eða ekki í samræmi við þjónustuframboð Símans í dag.

Verðbreytingar hjá Símanum

Highslide JS

Síminn breytir verði á þjónustu sinni frá og með 1. október. Áhrif til hækkunar á meðalreikning heimilis er 4,5%.
 
Þá lækkar Síminn verð á símtölum úr heimasíma í alla farsíma og einnig úr farsíma í farsíma í öðrum kerfum og tekur verðlækkunin gildi núna 1. september. Lækkunin er í þeim þjónustuleiðum sem eru með breytilega verðskrá fyrir hverja mínútu.
 
Undanfarin misseri hefur verðhækkunum Símans verið haldið í lágmarki þrátt fyrir þá verðlagsþróun sem átt hefur sér stað í þjóðfélaginu.  Þegar litið er til síðustu 24 mánuða hefur vísitala neysluverðs hækkað um 16,7%,  verð á bensíni  hækkað um 14,9%, áskriftir að helstu fjölmiðlum hafa hækkað um 21,9% og verð á áfengi og tóbaki um 44,6%, svo dæmi séu tekin. Á sama tímabili hefur þjónusta Símans, með verðbreytingunni sem tekur gildi 1.október, hækkað um 13,8%.
 
Við bendum viðskiptavinum okkar á að hafa samband við okkur í 8007000 til þess að kynna sér hagstæðar þjónustuleiðir sem henta símnotkun hvers og eins.
 
Síminn hvetur viðskiptavini sína til að kynna sér breytingarnar vel: Verðskrárbreytingar (pdf)


« Til baka

Aðrir vefir