Verðbreytingar hjá Símanum
Síminn hefur gert miklar endurbætur á sjónvarpskerfi sínu bæði í gegnum ADSL og Ljósnet. Stöðugar uppfærslur á kerfinu gefa viðskiptavinum enn betri upplifun en áður auk þess sem innifalið vöruframboð í Sjónvarpi Símans hefur aukist umtalsvert. Síminn hækkar grunngjald í Sjónvarpi Símans í 990 kr. úr 490 kr. 1. janúar en nú fylgja 4 erlendar sjónvarpsstöðvar inni í grunngjaldinu sem áður þurfti að greiða fyrir 395 kr. Þetta eru National Geographic, Sky News, DR 1 og Boomerang barnarásin.
Í Sjónvarpi Símans njóta viðskiptavinir aðgangs að yfir 4000 titlum í vídeóleigunni SkjárBíó, þar af eru yfir 700 titlar fríir með fullt af barnaefni. Þá geta áskrifendur að SkjáEinum og sjónvarpsstöðvum 365 horft á dagskrá á plúsrásum eða í Frelsi, hvenær sem hentar. Þetta á einnig við um RÚV. Ennfremur viljum við vekja athygli á Plötu vikunnar sem er glæný þjónusta í Sjónvarpi Símans til þess að kynna íslenska tónlist fyrir jól en viðskiptavinir geta hlustað á nýútgefið íslenskt efni í heila viku. Þá minnum við á fríar innlendar útvarpsrásir og 24 erlendar tónlistarrásir með blönduðum efni frá Music Choice og síðast en ekki síst Bestu lögin en þar eru ýmsir lagalistar sem tónlistargúrúar setja saman og eiga við öll tækifæri. Nýjasti listinn er samansettur af bestu jólalögunum frá ýmsum tímum. Hér má finna allt um þá frábæru þjónustu sem Sjónvarp Símans veitir.
Síminn leggur áherslu á stöðuga og örugga nettengingu en innifalið í interneti hjá Símanum er m.a. Netvarinn en með Netvaranum fær heimilið öflugt tæki til að útiloka óæskilegt efni á netinu og koma þannig í veg fyrir að börn og unglingar villist þangað sem þau eiga alls ekki erindi. Auk þess sem Netvarinn er góð viðbót við hefðbundnar vírusvarnir. Internetþjónusta hækkar nú um 100 kr. á ADSL leiðum og 200 kr. á Ljósneti Símans. Ef fólk kýs að hafa internetið en engan heimasíma greiðir það línugjald sem er 1.490 kr. í stað 1.210 kr. áður. Hér má sjá fjöldan allan af möguleikum í internetáskriftum Símans. Kynnið ykkur Netvarann í leiðinni.
Síminn býður hagstæðar leiðir til þess að nota heimasímann sem er ávallt traustur. Við mælum sérstaklega með því að viðskiptavinir kynni sér þjónustuna “Heimasími um allan heim” sem býður upp á hagstæðar lausnir í samskiptum við fjölskyldu eða vini í útlöndum. Um áramót hækkar grunnáskrift í heimasíma um 90 kr., fer upp í 1.880 kr. Við hvetjum viðskiptavini til þes að kynna sér hagstæðar leiðir eins og 0 kr. í alla heimasíma en þar er áskriftargjaldið eftir hækkun 2.180 kr. Áskriftarleiðin Langbestur hækkar um 90 kr. og er nú á 4.080 kr. Í þeirri leið má hringja ótakmarkað í alla heimasíma fyrir 0 kr. og ekkert upphafsgjald er greitt af þeim símtölum og enn betra er að í Langbestur eru 100 mínútur innifaldar á 0 kr. í GSM síma óháð kerfi. Ekki er greitt upphafsgjald af inniföldum mínútum. Hér má finna allt um heimasímaþjónustuna, minnum líka á að Síminn býður símtöl til vina og vandamanna úr heimasíma til útlanda án endurgjalds á jóladag.
Síminn leggur allt kapp sitt á að bjóða framúrskarandi þjónustu og að viðskiptavinir finni að hjá okkur fái þeir gæði á sanngjörnu verði. Við viljum sníða fjarskiptaþjónustu viðskiptavina okkar að þörfum þeirra og notkun.
Áhrif til hækkunar frá 1. janúar á meðalreikning heimilis er 4,06%.
Við viljum endilega fá línu frá ykkur á netfangið 8007000@siminn.is eða símtal í 8007000 í þeim tilgangi að kynna hagstæðar þjónustuleiðir sem henta símnotkunni. Við erum líka ávallt til í að taka á móti endurgjöf viðskiptavina okkar um þjónstu og vörur Símans.
Síminn hvetur viðskiptavini sína til að kynna sér breytingarnar vel: Nánar um verðbreytingarnar (PDF)
