Athugið
Vinsamlega athugið að þessi grein tilheyrir fréttasafni Símans, og er orðin meira en árs gömul.Efnislegt innihald greinarinar gæti því verið úrelt eða ekki í samræmi við þjónustuframboð Símans í dag.
Síminn og iDigi hefja tilraunir með-
Fyrirtækið iDigi hefur sérhæft sig í þróun
þráðlausra örbylgjulausna og hefur rekið örbylgjukerfi í Bandaríkjunum í
nær fjögur ár. Lausn iDigi er bæði áreiðanlegri og hagkvæmari en þær
lausnir sem áður hafa þekkst á markaðnum meðal annars vegna lítilla
truflana sem verða á kerfinu.
Markmið Símans er að vera ávallt í forystuhlutverki í fjarskipta- og
upplýsingatækni á Íslandi og bjóða viðskiptavinum sínum bestu tæknilausnir
sem völ er á. Einnig keppir Síminn að því að vera meðal þeirra fyrirtækja í
Evrópu sem bjóða hagkvæmustu lausnir á sviði fjarskipta- og
upplýsingatækni.
Tilraunaverkefnið felur í sér prófanir á þessari nýju og byltingarkenndu
örbylgutækni sem skarar fram úr hvað varðar gæði og áreiðanleika. Tilraunin
mun hefjast fljótlega og standa yfir í rúman mánuð. Áætlað er að um 200
valdir viðskiptavinir Símans, fyrirtæki og einstaklingar, taki þátt í
tilrauninni, sem framkvæmd verður á höfuðborgarsvæðinu.
