Tæknimaður mætir til viðskiptavinar og metur hvar líklegast er að leita bilunar og greinir síðan og gerir við bilun sé þess nokkur kostur. Til viðmiðunar eru notaðar reglur Póst- og fjarskiptastofnunar um innanhússlagnir (PDF) en þar segir meðal annars í 4. grein:
Ábyrgð á lögnum
Húseigendur eru ábyrgir fyrir innanhússlögnum fyrir fjarskipti frá nettengipunkti. Byggingarfulltrúi samþykkir teikningar af fjarskiptalögnum og hefur eftirlit með því að lagnir séu í samræmi við samþykktar teikningar. Húseigendur bera ábyrgð á öllu viðhaldi, breytingum og endurnýjun innanhússlagna. Húseigendur bera ábyrgð á því að heildstæði almennra fjarskiptaneta raskist ekki af tengingu þeirra við innanhússlagnir.
