Þessum vef er ætlað að upplýsa áhugasama vefhönnuði um þær áskoranir sem liggja fyrir þegar hanna á vef til birtingar í farsímum. Gert er ráð fyrir lesendur hafi grunnþekkingu í html og einhverja reynslu í smíði vefsíðna. Upplýsingarnar hér ættu þó að geta nýst öllum með áhuga á vefsíðugerð sem vilja spreyta sig á gerð vefsíðna fyrir farsíma.
Meirihluti smátækja sem hafa vafra og geta nettengst eru símar, en einnig má nefna lófa- og leikjatölvur. Þótt hér sé einblínt á vafra í símum, þá á efnið við vafra í smátækjum almennt.
Í dag eru fjölmörg dæmi um vefi í farsímum sem hægt er að skoða. http://m.siminn.is er ágætis upphafspunktur, bæði til að skoða uppbyggingu vefsins og svo vísar vefurinn á fjölmarga vefi sem eru sérsniðnir fyrir farsíma.

Vefir í farsímum eru í mikilli þróun þessa dagana og því getur efni þessa vefs breyst. Hafðu samband ef þú vilt koma ábendingu á framfæri um hvernig við getum bætt vefinn.