eSIM frá Símanum
Með eSIM frá Símanum getur þú tengt síma, snjallúr eða spjaldtölvu á einfaldan hátt. Njóttu meiri sveigjanleika, aukinna þæginda og öruggrar tengingar um allt land.



Hvað er eSIM?
eSIM er stafrænt SIM kort sem er innbyggt í tækið þitt og kemur í staði hefðbundins plast SIM korts. Þú virkjar það rafrænt og tengist farsímakerfi Símans án þess að setja kort í tækið. eSIM er í flestum nýrri snjallsímum, snjallúrum og spjaldtölvum.


Af hverju að velja eSIM?
Með eSIM færðu meiri sveigjanleika, einfaldari virkjun og örugga tengingu í farsímakerfi Símans um allt land.

Úræði og snjallúr
Með Úræði getur þú notað símanúmerið þitt í Apple Watch eða Samsung Galaxy Watch. Þannig getur þú verið á ferðinni án þess að taka símann þinn með þér. Þú getur hringt, tekið á móti símtölum og notað úrið á ferðinni, hvort sem þú ert að hlaupa, hjóla, fara í ræktina eða sinna deginum.

Öruggt samband um allt land
Með eSIM tengist þú sama öfluga farsímakerfi Símans og með hefðbundnu SIM korti. Hvort sem þú ert í bænum eða á ferð um landið geturðu hringt, sent skilaboð og notað netið með áreiðanlegri tengingu.

Mikilvægt áður en þú skiptir yfir í eSIM
Rafræn skilríki sem eru vistuð á plast SIM kortinu virka ekki með eSIM. Við mælum með að setjir upp Auðkennisappið áður en þú skiptir yfir í eSIM.

Fáðu eSIM í örfáum skrefum
Þú getur fengið eSIM kort hjá Símanum með auðveldum hætti. Eina sem þú þarft er snjallsími sem styður eSIM.
Vita meira1. Gakktu úr skugga um að tækið þitt styðji eSIM.
Þú getur staðfest það með því að skoða stillingar tækisins eða upplýsingar frá framleiðanda.
2. Hafðu samband við þjónustuver eða pantaðu eSIM.
Hafðu samband við þjónustuverið okkar og við getum fært áskriftina þína yfir á eSIM númer. Þú getur líka auðvitað mætt í næstu verslun Símans og við munum aðstoða þig við að setja upp eSIM í símanum þínum!
3. Við sendum þér QR-kóða.
Þú færð sendan QR-kóða rafrænt í tölvupósti.
4. Skannaðu kóðann og virkjaðu eSIM í tækinu.
Þú skannar QR-kóðann með myndavélinni á símanum með auðveldum hætti.
Með hvaða tækjum virkar eSIM?
eSIM virkar aðeins á tækjum sem hafa innbyggðan eSIM-stuðning. Með eSIM frá Símanum getur þú tengt síma, snjallúr eða spjaldtölvu á einfaldan hátt.
Það kostar ekkert að skipta úr plast SIM í eSIM.
Gakktu úr skugga um að tækið sé nettengt og styðji eSIM. Prófaðu einnig að endurræsa tækið og reyna að skanna kóðann aftur. Ef vandinn lagast ekki getur þú haft samband við þjónustuverið okkar í síma 550 6000.
Já, þú getur til dæmis verið með vinnunúmer og einkanúmer í sama síma. Athugaðu þó að stuðningur fer eftir tækinu þínu.
Já, áskriftin þín virkar erlendis með sama hætti og hún gerði áður.
Þú getur athugað það í stillingum tækisins eða á vef framleiðanda. Almennt styðja flestir nýrri snjallsímar, snjallúr og spjaldtölvur eSIM, en það getur verið mismunandi eftir gerð, útgáfu og markaði.
Rafræn skilríki sem eru vistuð á SIM kortinu þínu virka ekki með eSIM. Við mælum með að þú setjir upp Auðkennisappið áður en þú færir þig yfir í eSIM.











