120 ár af nýsköpun

25. ágúst 2026

Í dag höldum við því upp á 120 ára sögu Símans sem hefur einkennst af frumkvöðlastarfsemi, sóknarhug, trausti og öryggi í rekstri frá fyrstu tíð.

imageHero

„Þúsund ára einangrun Íslands var rofin. Þjóðin var komin í ritsímasamband við önnur lönd.“

Þannig var tímamótunum lýst á þessum degi fyrir 120 árum þegar ritsíminn tengdi Ísland við útlönd í fyrsta sinn. Segja má að á þessum vendipunkti í sögu Íslands hafi saga Símans hafist, en hún hefur verið samofin sögu þjóðarinnar allar götur síðan.

Í dag höldum við því upp á 120 ára sögu sem hefur einkennst af frumkvöðlastarfsemi, sóknarhug, trausti og öryggi í rekstri frá fyrstu tíð.

Það þurfti enda að hugsa stórt á upphafsárum síðustu aldar til að leggja símalínu þvert yfir strjálbýlt og veðrasamt land sem þá taldi rétt um 80 þúsund íbúa. Eða eins og því var lýst um árið í skrásetningu á 100 ára sögu Símans:

„Meirihluti landsmanna lifði enn á landbúnaði og dæmigerð sveitafjölskylda bjó í torfbæ. Hestvagnar komu óvíða að gagni því vegir voru illfærir og flestar ár óbrúaðar. Fyrsti bíllinn hafði komið til landsins árið áður en hann komst ekki einu sinni frá Reykjavík til Keflavíkur. Vegurinn náði ekki lengra en til Hafnarfjarðar.

Við þessar aðstæður var ekki að furða að mönnum þætti mikið í ráðist að leggja símalínur alla leið frá Seyðisfirði um Vopnafjörð til Akureyrar, yfir Heljardalsheiði og svo með byggðum til Reykjavíkur og tengja þannig höfuðstað landsins við umheiminn.“

Það er ekki ofsagt að Ísland hafi tekið stakkaskiptum síðan, og tæknin með. Frá árdögum ritsímans höfum við sótt fram með talsíma, farsíma, interneti, ljósleiðara, sjónvarpi og nú erum við á fullri ferð við að 5G væða Ísland.

Í dag er símasamband óvíða betra í heiminum en á Íslandi, þrátt fyrir að við séum enn bæði fámennt land og strjálbýlt.

Þó tímarnir og tæknin hafi breyst hefur frumkvöðlahugsunin og sóknarhugurinn sem einkenndi Símann frá fyrsta degi þannig ekki breyst. Þessa dagana er næsti kafli í sögu Símans að hefjast, þar sem félagið verður hluti af öflugri samstæðu stafrænna þjónustufyrirtækja sem saman geta skapað enn meira virði fyrir viðskiptavini, starfsfólk, hluthafa og þjóðina alla.