Frá ritsíma til 5G: 120 ára saga Símans

05. nóvember 2026

Í ár eru 120 ár liðin frá því að saga Símans hófst. Á þeim tíma hefur ótrúlega margt breyst, bæði Ísland og tæknin sem tengir okkur saman.

imageHero

Frá ritsíma og fyrstu símalínum landsins yfir í talsíma, farsíma, internet, sjónvarp, ljósleiðara og 5G. Síminn hefur fylgt landsmönnum í gegnum miklar tæknibreytingar og tekið þátt í að tengja fólk saman, innanlands sem utan.

Í 120 ár hefur saga Símans fléttast saman við þróun íslensks samfélags. Í tilefni afmælisins lítum við um öxl og rifjum upp nokkur augnablik úr sögunni.