23 tilnefningar til Eddu verðlauna

16. apríl 2026

Sjónvarp Símans Premium er sú streymisveita sem hýsir mest af því efni sem hlaut tilnefningar til Edduverðlaunanna í ár, samkvæmt nýlega birtum tilnefningum Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar.

imageHero

Meðal þeirra verka sem hlutu tilnefningar og eru aðgengileg á Sjónvarpi Símans Premium eru þáttaraðirnar Heimaey, Reykjavík 11, Reykjavík Fusion og King and Conqueror. Tilnefningar þessara þátta undirstrika sterka stöðu Sjónvarps Símans Premium sem heimili fyrir metnaðarfullt og vandað sjónvarpsefni.

Fjórar seríur tilnefndar

Þættir Sjónvarps Símans Premium hlutu flestar tilnefningar til Edduverðlauna í ár, alls 23 tilnefningar. Þættir sem framleiddir voru fyrir RÚV hlutu 20 tilnefningar og þættir Sýnar hlutu 1 tilnefningu.

Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían birti á dögunum tilnefningar fyrir kvikmyndir og sjónvarpsefni. Þar hlutu fjórar þáttaraðir frá Sjónvarpi Símans Premium tilnefningar en það voru þáttaraðirnar Reykjavík Fusion, King & Conqueror, Heimaey og Reykjavík 112. Aðrar þáttaraðir sem hlutu tilnefningar voru Felix og Klara, Vigdís og Brjánn.

Stolt af íslensku efni

“Bak við þessar tilnefningar stendur stór hópur af mögnuðu fólki og framleiðslufyrirtækjum sem við erum virkilega þakklát að starfa með. Í þessu samstarfi hefur orðið til íslenskt sjónvarpsefni sem Íslendingar og okkar áskrifendur elska að horfa á og við erum virkilega stolt af,” segir Birkir Ágústsson, framkvæmdastjóri Miðla hjá Símanum.

Íslenskt efni í miklum vexti

Verðlaunin hafa verið veitt árlega af Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni frá árinu 1999. Tilnefningar til Edduverðlauna eru kosnar af hópi valnefnda skipuðum fagaðilum í greininni.

„Það er frábært að sjá hversu stór hluti sjónvarpsþátta sem hljóta tilnefningar í ár eru aðgengilegur hjá okkur, hjá Símanum. Það sýnir vel þá áherslu sem við höfum lagt á öflugt, leikið íslenskt sjónvarpsefni,” segir Birkir að lokum.