Boltamömmur eru á leiðinni í Sjónvarp Símans Premium
26. ágúst 2026
Boltamömmur eru hugarfóstur Lilju Nætur Þórarinsdóttur, leikkonu og handritshöfundar, en hugmyndin kviknaði út frá hennar eigin reynslu sem fótboltamamma.

Ný íslensk gamanþáttaröð, Boltamömmur, hefur göngu sína í Sjónvarpi Símans Premium í september. Þættirnir segja frá nýfráskilinni konu sem hellir sér af lífi og sál í heim yngri flokka fótboltans þar sem dramatíkin, keppnisskapið og tilfinningarnar eru áberandi á hliðarlínunni.
„Hugmyndin kom til mín á hliðarlínunni í mínu eigin boltamömmulífi sem er svo ótrúlega spennandi og skemmtilegt. Þar er alltaf nóg af hasar og drama, jafnvel meira utan vallar en innan,“ segir Lilja Nótt.
Leikstjórn er í höndum Hannesar Þórs Halldórssonar og Hafsteins Gunnars Sigurðssonar. Handritið skrifa Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir, Sóli Hólm, Hafsteinn Gunnar, Lilja Nótt og Hannes Þór.
Með helstu hlutverk fara Kristín Þóra Haraldsdóttir, Lilja Nótt, Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Hildur Vala Baldursdóttir, Anna Svava Knútsdóttir, Iðunn Ösp Hlynsdóttir, Ólafur Egilsson, Mikael Kaaber og Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi.
“Það er alltaf jafn spennandi að frumsýna nýtt íslenskt leikið efni. Boltamömmur færa okkur beint á hliðarlínuna með sögur sem flestir fótboltaforeldrar ættu að kannast við. Við vitum að áhorfendur okkar kunna vel að meta íslenska kvikmyndagerð og viljum halda áfram að færa þeim metnaðarfullt íslenskt gæðaefni heim í stofu.” segir Birkir Ágústsson, framkvæmdarstjóri miðla hjá Símanum
Dramatíkin færist út fyrir völlinn
Þættirnir vöktu töluverða athygli áður en tökum lauk þegar myndskeið af hópi kvenna í hörðum slagsmálum á fótboltamóti barna fór í mikla dreifingu. Síðar kom í ljós að slagsmálin voru leikin og hluti af tökum á Boltamömmum.
„Við erum með frábæran hóp fólks í teyminu, en hugmyndin um fótboltaforeldra og dramatíkina sem heltekur þá hefur vaxið, dafnað og orðið að skemmtilegum heimi sem iðar af lífi,“ segir Hannes Þór.
Boltamömmur eru framleiddar af Atlavík, sem einnig stendur á bak við þáttaraðir á borð við IceGuys og Bannað að hlæja. Verkefnið hefur verið í þróun undanfarin tvö ár.