Kaleo í beinni útsendingu í Sjónvarpi Símans
17. júní 2026
Tónleikahátíð á Þingvöllum með Kaleo, Emilíönu Torrini, Stuðmönnum og fjölda annarra listamanna verður sýnd í opinni dagskrá laugardaginn 20. júní

Síminn mun sýna frá tónleikahátíðinni Bergmál í beinni útsendingu sem fram fer á Þingvöllum laugardaginn 20. júní á sumarsólstöðum. Útsendingin verður í opinni dagskrá og hefst klukkan 14:00 með opnunarathöfn frá aðalsviði hátíðarinnar, Dynbergi. Útsendingin er hluti af hátíðarhöldum í tilefni af 120 ára afmæli Símans.
Bergmál fer fram í Þingvallaþjóðgarði og koma þar fram nokkrir af þekktustu tónlistarmönnum landsins. Hljómsveitin Kaleo er aðalnúmer hátíðarinnar og stígur tvisvar á svið yfir daginn, fyrst í akústískri dagskrá síðdegis og síðar á aðaltónleikum kvöldsins.
Dagskrá Dynbergs hefst með opnunarathöfn klukkan 14:00 og í kjölfarið tekur við fjölbreytt röð tónleika. Kaleo opnar tónleikadagskrána með akústískri framkomu klukkan 14:30, en síðar koma meðal annars fram Stuðmenn, GDRN, Mugison, Helgi Björnsson, Hjálmar og Emilíana Torrini.
Aðaltónleikar Kalepohefjast klukkan 21:00 og standa til 22:30. Að þeim loknum taka KK og Júníus Meyvant við og ljúka dagskrá aðalsviðsins um miðnætti.

Tvö svið á hátíðarsvæðinu
Auk Dynbergs verður boðið upp á dagskrá á Valhallarsviði frá klukkan 11:00. Þar koma fram listamenn á borð við Nóa Klose, 5K, Eirík Fjalar, TÁR, KK, Soffíu Björgu, Árnýju Margréti, GÓSS og Doctor Victor.
Dagskrá Valhallarsviðs lýkur með tónleikum Doctor Victor sem standa frá klukkan 17:00 til 18:00.

Beint frá einstöku umhverfi Þingvalla
Bergmál er haldið á sumarsólstöðum í náttúru Þingvallaþjóðgarðs. Hátíðin sameinar fjölbreytt úrval íslenskra tónlistarmanna og verður að þessu sinni sýnd í beinni útsendingu í opinni dagskrá Sjónvarps Símans.
Útsendingin er liður í afmælisári Símans, sem fagnar 120 ára starfsemi á árinu. Með henni gefst landsmönnum kostur á að fylgjast með tónleikunum óháð staðsetningu og njóta dagskrárinnar frá einum sögufrægasta stað landsins.
Meðal þeirra listamanna sem fram koma á hátíðinni eru Kaleo, Emilíana Torrini, Mugison, Stuðmenn, Helgi Björnsson, Hjálmar, GDRN, Júníus Meyvant, KK og Árný Margrét, auk fleiri gesta.
Fyrir tónlistaráhugafólk sem kemst ekki á staðinn gefst því kostur á að fylgjast með dagskránni í heild sinni í gegnum beina útsendingu Sjónvarps Símans laugardaginn 20. júní.