Allar íþróttir á einum stað og niðurhal komið í Sjónvarp Símans Premium
12. júní 2026

Síminn kynnir nýtt sportviðmót með sérstöku HM svæði og möguleika á niðurhali á efni úr Sjónvarpi Símans Premium sem gerir viðskiptavinum kleift að taka sjónvarpsefnið með sér hvert sem er.

Nýtt sportviðmót Símans
Á sama tíma og heimsmeistaramót karla í knattspyrnu 2026 fer af stað kynnir Síminn endurbætt sportviðmót sem einfaldar íþróttaáhorfendum að finna íþróttaviðburði og annað tengt efni á einum stað.
Nýja viðmótið er hannað með þarfir íþróttaunnenda að leiðarljósi. Þar er hægt að sjá yfirlit yfir alla helstu íþróttaviðburði næstu daga, finna efni eftir keppnum og nálgast útsendingar með einföldum hætti.

Sérstakt HM2026 svæði
Í tilefni af Heimsmeistaramótinu hefur verið sett upp sérstakt HM svæði innan sportviðmótsins þar sem öllum leikjum mótsins verður safnað saman á einum stað. Þar verður jafnframt hægt að nálgast fjölbreytt aukaefni frá RÚV, svo sem umfjallanir, viðtöl og annað tengt mótinu.
Markmiðið er að gera áhorfendum auðveldara að fylgjast með öllu því sem gerist á mótinu.

Yfir 100 íþróttaviðburðir á næstu sjö dögum
Sportviðmótið endurspeglar einnig það mikla framboð íþróttaefnis sem í boði er. Á næstu sjö dögum verða yfir 100 íþróttaviðburðir aðgengilegir í viðmótinu, allt frá stórmótum í knattspyrnu til annarra vinsælla íþróttagreina.
Með nýja sportviðmótinu verður auðveldara að fá heildaryfirsýn yfir það sem er í gangi hverju sinni, uppgötva nýtt efni og missa síður af þeim viðburðum sem skipta mestu máli.
Hvort sem áhuginn liggur í heimsmeistarakeppni í knattspyrnu, hjólreiðum, tennis, golfi eða öðrum íþróttum er markmiðið einfalt, að færa íþróttaáhorfendum betri yfirsýn, auka aðgengi og enn betri upplifun í sjónvarpsviðmóti Símans.

Taktu sjónvarpið með þér í sumar
Nýjungarnar í sjónvarpsviðmóti Símans ná þó lengra en sportið eitt. Með Sjónvarpi Símans Premium geta viðskiptavinir nú hlaðið niður sjónvarpsefni og horft á það án nettengingar hvar og hvenær sem er.
Þannig er auðvelt að taka uppáhaldsþættina, kvikmyndirnar eða barnaefnið með sér í flugið, sumarbústaðinn eða utanlandsferðina og njóta afþreyingar án þess að reiða sig á nettengingu.
