Aukið öryggi fyrir skólabörn með Símanum
30. apríl 2026
Síminn kom á 4G-tengingu í skólabíl á Patreksfirði til að auka öryggi nemenda.

Skólabíll keyrir daglega um Kleifaheiði á Vestfjörðum með leikskóla- og grunnskólabörn. Leiðin liggur um fjallvegi og svæði þar sem snjóflóðahætta er til staðar. Auk þess er farsímasamband á sunnanverðum Vestfjörðum víða stopult eða ekki til staðar. Því var brýnt öryggisatriði að tryggja skólabílnum stöðugt fjarskiptasamband. Ef alvarlegt atvik kæmi upp gæti annars reynst erfitt, jafnvel ómögulegt, að kalla eftir aðstoð.
Stöðugt samband á leiðinni
Síminn setti upp 4G-sendi í skólabílinn, sem tengist gegnum Starlink Mini- loftnet í miðlægt farsímakerfi. Búnaður með staðsetningarþjónustu stýrir farsímasendi um borð, þegar ekið er inn á svæði þar sem ekkert samband er, fer sendirinn sjálfkrafa í gang og tryggir stöðugt samband.
„Við í samstarfi við Símann höfum látið setja upp Starlink-búnað í skólabílnum þannig að þau séu í öruggu símasambandi á leið sinni frá Barðaströnd yfir á Patreksfjörð,“ segir Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar.

3G víkur fyrir nýrri tækni
Samhliða lokunum á 3G-kerfum um land allt eru gerðar endurbætur á 4G kerfum til að bæta en ferkar fjarskipti. Lokanir á 3G-kerfum eru í takt við þróun á heimsvísu þar sem 3G-kerfi eru komin til ára sinna og standast ekki lengur kröfur nútímans um hraða og öryggi.
Síminn fagnar því að 4G-tengingu hefur nú verið komið fyrir í skólabílnum á Patreksfirði. Með því er öryggi aukið hjá nemendum sem ferðast daglega með skólabílnum, auk þess sem fjarskiptamöguleikar eru bættir í dreifbýli. Lausnin er mikilvægt skref hjá Símanum í að þróa lausnir sem geta nýst víðsvegar, einkum þar sem áskoranir tengdar fjarskiptum í dreifðum byggðum eru til staðar.