Það kólnar í veðri, en hitnar í ástum og það verður enginn skortur á Love Island í haust. Fjórða þáttaröðin af Love Island USA er hafin í Sjónvarpi Símans Premium. Kynnir þáttanna er leikkonan Sarah Hyland úr Modern Family og aðdáendur bresku Love Island þáttanna geta glaðst yfir því að grínistinn Ian Stirling er einnig rödd bandarísku útgáfunnar.
Nýr þáttur kemur í Sjónvarp Símans Premium daglega.