Barnaefni á íslensku

19. október 2026

Frá Lubba og Sólon til Hvolpasveitarinnar, í Sjónvarpi Símans Premium bíður þín fjölbreyttur barnaheimur með íslensku efni, vinsælum teiknimyndum og kvikmyndum fyrir alla fjölskylduna.

imageHero

Með Hvolpasveitinni bíða björgunarleiðangrar, hjá Lubba er sungið og leikið með málhljóðin og Paddington kemur sér enn og aftur í vandræði. Í Sjónvarpi Símans Premium er fjölbreytt úrval barnaþátta og kvikmynda fyrir fjölskylduna, með íslenska tungu í fyrirrúmi.

Íslenskan hluti af leiknum
Íslenskt barnaefni gefur börnum tækifæri til að heyra eigið tungumál í sögum, söng og leik. Í Lubbi finnur málbein er leikið með málhljóðin, Bestu lög barnanna bjóða upp á söngstundir og hjá Sólon og í heimi Tulipop taka litríkar persónur á móti áhorfendum.

Í úrvalinu eru líka Vísinda Villi, Latibær og Söngvaborg. Þar geta börn fengið útrás fyrir forvitnina, hreyft sig og sungið með. Leiksýningar á borð við Draumþjófinn og Ávaxtakörfuna færa svo leikhúsupplifunina heim í stofu.

Uppáhaldspersónurnar tala íslensku
Meðal þekktustu þáttaraðanna hjá Símanum eru Hvolpasveitin, Svampur Sveinsson, Dóra landkönnuður og Ninja skjaldbökurnar. Þótt persónurnar og ævintýrin séu ólík eiga þau það sameiginlegt að börnin geta fylgst með á íslensku.

Úrvalið nær langt út fyrir þessar kunnuglegu hetjur. Þar má meðal annars finna Græneðlur, Smáskrímslin, Geimvini og Hundinn Ibba, ásamt sögum sem margar kynslóðir þekkja, svo sem Línu langsokk, Ronju ræningjadóttur, Múmínálfana, Hrútinn Hrein og Magga Mörgæs.

Bíóstund fyrir fjölskylduna
Þegar fjölskyldan vill velja sér kvikmynd er af nógu að taka. Paddington, Paddington 2, Hvolpasveitin: Ofurmyndin, kvikmyndir um Svamp Sveinsson og frábært úrval skemmtilegra ævintýra.

Þá má finna myndir á borð við Strumpana, Týnda tígurinn, 100% Úlf og Snædrottninguna. Í barnaheimi Sjónvarps Símans Premium er nóg úr að velja, hvort sem börnin vilja syngja með, horfa á sinn uppáhalds þátt eða njóta bíóstundar með fjölskyldunni.