Besta íslenska streymisveitan
01. október 2026
Um 43% landsmanna telja Sjónvarp Símans Premium bestu innlendu streymisveituna samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Til samanburðar nefna 35,9% RÚV og 17,8% Sýn+ sem bestu innlendu streymisveituna.

Sjónvarp Símans Premium skorar hæst, bæði hjá körlum og konum og í flestum aldurshópum. Í aldurshópnum 18–39 ára segja um 40% að Sjónvarp Símans Premium sé besta innlenda streymisveitan og um 50% aðspurðra á aldrinum 40–49 ára.
„Við erum mjög ánægð með þessar niðurstöður enda leggjum við metnað í að bjóða upp á fjölbreytt og vandað sjónvarpsefni þar sem íslenskar þáttaraðir skipa stóran sess. Niðurstöðurnar eru okkur hvatning til að halda áfram að efla dagskrána og færa áhorfendum það efni sem þeir vilja sjá,“ segir Birkir Ágústsson, framkvæmdastjóri miðla hjá Símanum.
Á síðustu fjórum árum hafa 26 íslenskar þáttaraðir verið sýndar í Sjónvarpi Símans Premium, þar af fimm ætlaðar börnum. Þetta er um 70-80% af öllum leiknum íslenskum þáttaröðum sem frumsýndar voru í íslensku sjónvarpi á þessu tímabili.
Síminn leggur ríka áherslu á varðveislu íslenskrar tungu með vandaðri dagskrárgerð. Meðal íslenskra þáttaraða á dagskrá ársins eru Hildur, Hæst, Röskun, Elma, Í versta falli, Sönn sakamál og Boltamömmur. Auk leikinna þáttaraða má nefna efni á borð við Lubbi finnur málbein, sem ætlað er að efla málþroska barna. Samhliða íslenskri dagskrárgerð er lögð áhersla á fjölbreytt erlent efni, jafnt þáttaraðir sem kvikmyndir.