Það verður skemmtilegt og bjart yfir Sjónvarpi Símans Premium á nýju ári! Stærsta þáttaröð ársins er án vafa Systrabönd, ný leikin íslensk þáttaröð með Ilmi Kristjánsdóttur, Lilju Nótt Þórarinsdóttur og Jóhönnu Friðriku Sæmundsdóttur í aðalhlutverkum. Við sjáum svo íslenskar þáttaraðir koma á færibandi á árinu, ný andlit bregða fyrir og gamlir vinir snúa aftur á skjáinn. Hver drap Friðrik Dór? er ný og spennandi þáttaröð, Með Loga, Vinátta, Aldrei ein og bestu vinir okkar allra í Venjulegu fólki.
Við myndum svo aldrei halda inn í nýtt ár án þess að bjóða hinn eina sanna Helga Björns velkominn aftur að viðtækjunum! Það er komin Helgi snýr aftur í janúar.
Stórar erlendar þáttaraðir snúa aftur og bíðum við spennt eftir nýrri þáttaröð af he Handmaid’s Tale ásamt glænýjum piparsvein í The Bachelor!
Þínar þáttaraðir þegar þér hentar, kvikmyndir, stóraukið úrval af barnaefni með íslensku tali og besta sjónvarp í heimi, Enski boltinn.
Nákvæmlega svona á sjónvarp að vera!