BritTV slær í gegn
05. október 2026
BritTV hefur fengið frábærar viðtökur hjá viðskiptavinum Sjónvarps Símans Premium. Nú bætist við spennuþáttaröðin Gone, þar sem David Morrissey og Eve Myles mætast í ráðgátu um mannshvarf og myrk leyndarmál.

Breskir spennuþættir hafa lengi átt tryggan aðdáendahóp á Íslandi og með BritTV hefur úrvalið í Sjónvarpi Símans Premium breikkað enn frekar.
Nýjasta viðbótin, Gone, telur sex þætti og er frá árinu 2026, framleidd fyrir ITV og Amazon Prime. Í aðalhlutverkum eru tvö af kunnuglegustu andlitum bresks sjónvarps, David Morrissey og Eve Myles. Viðtökur gagnrýnenda gefa unnendum breskra sakamála góða ástæðu til að setjast fyrir framan skjáinn.
Mannshvarf sem afhjúpar meira en nokkur bjóst við
Þegar Sarah, eiginkona skólastjórans Michaels Polly, hverfur beinist athyglin fljótt að eiginmanni hennar. Michael er virtur maður í samfélaginu, vanur að stjórna og halda öllu í föstum skorðum. Yfirvegun hans vekur hins vegar spurningar.
Er þetta maður sem bregst við áfalli á sinn hátt eða hefur hann eitthvað að fela? David Morrissey leikur skólastjórann dularfulla en Eve Myles fer með hlutverk rannsóknarlögreglukonunnar Annie Cassidy. Hún lætur hvorki stöðu hans né fágað yfirbragð villa um fyrir sér.
Þegar hún fer að grafa undir yfirborðið hefst sálræn glíma þar sem hvert svar kallar á nýjar spurningar. Að baki þáttaröðinni stendur handritshöfundurinn George Kay, sem hefur meðal annars komið að Lupin, Hijack og The Long Shadow. Í Gone byggir hann upp spennu í kringum persónur sem erfitt er að lesa og leyndarmál sem koma smám saman í ljós.
Fjórar stjörnur hjá breskum gagnrýnendum
Gone hefur hlotið afar góða dóma í Bretlandi og fengið fjórar stjörnur hjá The Telegraph, The Independent, The Guardian og Radio Times. Leikur aðalleikaranna og sálræn spenna sögunnar hafa vakið sérstaka athygli.
Morrissey er íslenskum áhorfendum meðal annars kunnur úr The Walking Dead og Sherwood, en Myles hefur farið á kostum í þáttum á borð við Torchwood, Keeping Faith og The Crow Girl.
Breskt gæðaefni í einni áskrift
Gone bætist nú við fjölbreytt úrval BritTV, þar sem sígildar breskar þáttaraðir og nýjar spennusögur eiga samleið. Meðal sjónvarpsþátta í veitunni eru Luther, The Missing, Baptiste, The Office og Little Britain.
Aðgangur að BritTV fylgir Sjónvarpi Símans Premium, ásamt HBO Max og Hayu. Þar sameinast íslensk dagskrárgerð og fjölbreytt erlent efni í einni áskrift.