Dexter snýr aftur á hrekkjavökunni

18. október 2026

Önnur þáttaröð Dexter Resurrection hefst í Sjónvarpi Símans Premium 31. október. Michael C. Hall snýr aftur sem Dexter Morgan og fær nú til liðs við sig Brian Cox og Dan Stevens.

imageHero

Dexter er hvergi nærri hættur og í New York bíða hans nýir andstæðingar. Brian Cox, sem margir þekkja sem Logan Roy úr Succession, leikur raðmorðingjann alræmda The New York Ripper. Dan Stevens fer með hlutverk annars morðingja sem ögrar lögreglunni með hótunum og lætur síðan til skarar skríða. Uma Thurman snýr jafnframt aftur sem Charley og Jack Alcott sem Harrison, sonur Dexters.

Fram undan er því myrk og spennandi hrekkjavaka fyrir aðdáendur Dexters.

Dexter: Resurrection er meðal fjölmargra spennuþátta í Sjónvarpi Símans Premium, bestu íslensku streymisveitunni að mati svarenda í könnun Maskínu. Þar sameinast íslensk dagskrárgerð, erlent gæðaefni og aðgangur að HBO Max, Hayu og BritTV í einni áskrift.