Eimskip tekur fyrirtækjakort Símans Pay í notkun

06. júní 2025

Síminn og Eimskip hafa undirritað samning um innleiðingu fyrirtækjakorts Símans Pay í starfsemi félagsins. Eimskip bætist í hóp um 140 rekstraraðila sem hafa tekið kortið í notkun síðustu mánuði.

imageHero

Síminn og Eimskip hafa undirritað samning um innleiðingu fyrirtækjakorts Símans Pay í starfsemi Eimskips.

Fyrirtækjum sem nýta kortið fer ört fjölgandi, en Eimskip bætist í hóp um 140 rekstraraðila sem hafa tekið það í notkun síðustu mánuði. Þá eru um 50 fyrirtæki til viðbótar í innleiðingarferli um þessar mundir.

Innleiðing fyrirtækjakorts Símans Pay getur sparað fyrirtækjum tugi eða hundruð vinnustunda á mánuði, sem jafngildir nokkrum stöðugildum hjá stærri fyrirtækjum, þar sem ekki þarf að bóka hverja færslu með handvirkum hætti eða kalla eftir kvittunum. Auk þess er sérstakt eftirlitskerfi innbyggt í lausnina sem kallar eftir gögnum sem vantar og lætur stjórnendur vita ef misbrestur er á skráningu.

Tækifæri í áframhaldandi vexti

Kortið er gefið út með rafrænum hætti. Hægt er að gefa kortið út á einstaka starfsmenn, hvort sem er tímabundið eða til lengri tíma. Stjórnendur fyrirtækja geta sjálfir stjórnað heimildum kortanna og lausnin flokkar allar færslur um leið og þær eru framkvæmdar

Aðalgeir Þorgrímsson, forstöðumaður fjártækni Símans, reiknar með áframhaldandi vexti í innleiðingu kortsins.

„Lausnin gerir fyrirtækjum og stofnunum kleift að færa tíma sem áður fór í handavinnu yfir í uppbyggilegri verkefni. Við finnum fyrir mikilli ánægju hjá okkar viðskiptavinum og sjáum umtalsverð tækifæri í áframhaldandi sókn. Þetta á ekki síst við hjá hinu opinbera, þar sem ætlunin er að hagræða í rekstri næstu misserin – en með innleiðingu kortsins má ná fram verulegri hagræðingu með lítilli fyrirhöfn,“ segir Aðalgeir.

Á annað hundrað þúsund notendur í öðrum lausnum

„Við hjá Eimskip erum mjög ánægð með innleiðingu fyrirtækjakorts Símans Pay. Lausnin hefur einfaldað vinnuferla til muna og sparað okkur mikinn tíma. Við höfum fengið framúrskarandi þjónustu frá Símanum Pay og lausnin hefur reynst vera áreiðanleg og fljótvirk. Við sjáum fram á að nýta þessa lausn til að auka skilvirkni og hagræðingu í rekstri okkar,“ segir María Björk Hauksdóttir, deildarstjóri bókhalds hjá Eimskip.

„Þegar við hófum þessa vegferð voru skoðaðir fleiri möguleikar til að hafa yfirsýn hvað væri í boði. En út frá kröfum tengt tækni og skilvirkni völdum við vinna með Símanum Pay,“ segir Anna María E. Guðmundsdóttir, innkaupastjóri Eimskips

Fyrirtækjakortið er ein lausn af mörgum í vöruframboði Símans Pay. Kreditkort fyrir einstaklinga hefur notið mikilla vinsælda, en kortið er án árgjalds og gengisálags. Þá eru um 150 þúsund notendur skráðir hjá Noona, sem varð hluti af samstæðu Símans í fyrra, og bóka þeir um um 200 þúsund tíma á mánuði gegnum appið.

Á mynd frá vinstri: Bjarni Sindri Bjarnason og Ólafur Fannar Heimisson frá Símanum Pay, María Björk Hauksdóttir og Anna María E Guðmundsdóttir frá Eimskip