Einstaklega vel heppnað Golfmót Símans
02. september 2026
Golfmót Símans fór fram á Hlíðavelli í Mosfellsbæ miðvikudaginn 26. ágúst síðastliðinn.

Golfmót Símans fór fram á Hlíðavelli í Mosfellsbæ miðvikudaginn 26. ágúst síðastliðinn. Fyrirtækjasvið og Auglýsingamiðlun Símans, ásamt Símanum Pay, stóðu fyrir mótinu og tóku á móti viðskiptavinum í frábærum aðstæðum þar sem veðrið lék sannarlega við keppendur.

Mikil stemning var á vellinum allan daginn og greinilegt að viðskiptavinir Símans kunnu vel að meta daginn. Hlíðavöllur sýndi sínar bestu hliðar og þátttakendur tóku virkan þátt í þeirri góðu stemningu sem einkenndi mótið.
Fjölmargir keppendur tóku þátt og dagurinn heppnaðist einstaklega vel. Við þökkum öllum sem tóku þátt í Golfmóti Símans fyrir frábæran dag, góða stemningu og skemmtilega samveru.





