Strand Eldhamars GK – 35 árum eftir eitt mannskæðasta sjóslys síðustu áratuga

10. nóvember 2026

Þann 22. nóvember eru 35 ár liðin frá því að fimm ungir sjómenn fórust þegar Eldhamar GK-13 strandaði við Hópsnes, skammt frá Grindavík. Í tveimur nýjum þáttum í Sjónvarpi Símans Premium rifjar Sigursteinn Másson upp þennan hörmulega atburð, ræðir við þá sem upplifðu hann og varpar ljósi á spurningar sem enn standa eftir.

imageHero

Það var að kvöldi 22. nóvember árið 1991 sem Eldhamar GK-13 var á heimleið eftir línuveiðar suðaustur af Grindavík. Skipverjar voru á leið í fertugsafmæli útgerðarmannsins þegar ferðin tók hörmulegan endi.

Klukkan 19:50, aðeins tíu mínútum áður en afmælisveislan átti að hefjast, barst neyðarkall frá skipinu. Eldhamar hafði strandað við vestanvert Hópsnes, skammt frá innsiglingunni að Grindavíkurhöfn.

Í fyrstu virtist ekki mikil hætta á ferðum enda veður gott og vindur hægur. Aðstæður breyttust hins vegar hratt. Skipið sökk að framanverðu og lagðist á hliðina á meðan öldurnar gengu yfir það. Allir sex skipverjarnir lentu í sjónum og aðeins einn þeirra, stýrimaður skipsins, komst lífs af.

Spurningar sem enn leita svara

Í kjölfar slyssins var stýrimaðurinn ákærður fyrir manndráp af gáleysi en síðar sýknaður. Ágreiningur hefur verið um hvað gerðist í brúnni á síðustu mínútunum fyrir strandið.

Í þáttunum ræðir Sigursteinn Másson við stýrimanninn, sem segir sína hlið á atburðarásinni, en einnig við útgerðarmann skipsins sem dregur frásögn hans í efa.

Þá ræða tvær ekkjur skipverjanna sem fórust um þennan örlagaríka dag og afleiðingar hans. Einnig er rætt við björgunaraðila sem lögðu mikið á sig við erfiðar aðstæður á Hópsnesi.

Harmleikur sem markaði tímamót í björgunarmálum

Strand Eldhamars er eitt mannskæðasta sjóslys við Ísland á síðustu fjórum áratugum. Harmleikurinn vakti jafnframt áleitnar spurningar um viðbragðstíma og björgunargetu hér á landi.

Á þessum tíma var eina björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar biluð á Ísafirði og vegna misskilnings dróst að kalla út þyrlu varnarliðsins. Atburðurinn varð síðar til þess að ráðist var í kaup á nýrri björgunarþyrlu fyrir Landhelgisgæsluna og markaði þannig mikilvæg tímamót í íslenskri björgunarsögu.

Tveir þættir um strand Eldhamars verða frumsýndir í Sjónvarpi Símans Premium fimmtudaginn 19. nóvember. Í þáttunum er þessi örlagaríki atburður rifjaður upp og ljósi varpað á þær spurningar sem enn standa eftir, 35 árum síðar.