Eva Ruža mætir í Sjónvarp Símans
23. febrúar 2026
Koddahjal með Evu Ružu hefur göngu sína miðvikudaginn 25. febrúar klukkan 20:00 í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans!

Í þáttunum mun Eva Ruža fá til sín góða gesti í beina útsendingu til að kryfja allt það helsta í heimi raunveruleikasjónvarps. Þættirnir verða í opinni dagskrá á Sjónvarp Símans rásinni sem er aðgengileg öllum í gegnum Sjónvarp Símans appið og munu svo í kjölfarið fara inn í Sjónvarp Símans Premium!
Þættirnir verða í sýningu seinasta miðvikudag hvers mánaðar og verður farið yfir allt það helsta í viðtækum heimi raunveruleikasjónvarpsins þann mánuðinn. Í fyrsta þætti verða engin önnur en Eva Laufey Kjaran og Hjálmar Örn gestir og ætla þau að fara í saumana á dramatíkinni í Love Island All Stars, Real Housewives of Beverly Hills og Below Deck!