Hvað gerist þegar maður er afbrýðisamur? Hvað borðar Þorgerður Katrín í morgunmat og hvernig hannar maður skó? Hvernig breytast sunddrottningar í Hollywoodleikkonur og hvað hlaupa sjötugir karlar hratt? Samfélagsmiðlastjarnan og gleðigjafinn Eva Ruza svarar þessum og fleiri áríðandi spurningum í nýju lífstílsþáttunum Mannlífi.
Eva kennir áhorfendum að elda og drekka kaffi, skoðar áhugaverða hönnun og hittir alla vega fólk sem er að gera allavega hluti. Jóga, bernaise og Jógvan – hver sem spurningin er, þá hefur Eva svarið í Mannlífi. Öll þáttaröðin er komin í Sjónvarp Símans Premium.