Gervigreind og fræðsla starfsfólks í brennidepli

07. maí 2026

Mannauðs- og fræðslustjórar frá fjölmörgum fyrirtækjum komu saman í höfuðstöðvum Símans í dag, 7. maí, til að ræða þróun gervigreindar og áhrif hennar á fræðslu og hæfniþróun starfsfólks.

imageHero

Gervigreind og fræðslumál voru meðal umræðuefna á viðburði sem var haldinn í dag, 7. maí, í höfuðstöðvum Símans. Mannauðs- og fræðslustjórar frá mismunandi atvinnugreinum komu þar saman til að ræða þróun gervigreindar og áhrif hennar á fræðslu og hæfniþróun starfsfólks.

Viðburðurinn fór fram í kennsluaðstöðu Símans og var vel sóttur. Gestir fengu innsýn í hvernig fyrirtæki nálgast síbreytilegt landslag gervigreindar og hvernig hægt er að nýta tæknina til að efla nám, fræðslu og starfsþróun.


Meðal þeirra sem fluttu erindi voru:


  • Júlía Hrönn Guðmundsdóttir, verkefnastjóri hjá Isavia, sem flutti erindið „Aðstoðarflugmaðurinn lentur í KEF“ þar sem hún fjallaði um Copilot og hvernig gervigreind getur stutt starfsfólk í daglegum verkefnum.
  • Þórður Ingi Guðmundsson, forstöðumaður Gervigreindarseturs hjá Advania, ásamt Önnu Lottu Michaelsdóttur, mannauðssérfræðingi hjá Advania, með erindið „Að þjálfa fólk fyrir heim sem uppfærist á hverjum degi.“ Þau töluðu meðal annars um mikilvægi þess að þróa hæfni starfsfólks samhliða örum tæknibreytingum.
  • Eva Karen Þórðardóttir, fræðslustjóri hjá Símanum, sem flutti erindið „Einstaklingsmiðuð nálgun í gervigreind,opnum hugann og eflum hæfni“ og lagði áherslu á mannlega þáttinn í innleiðingu nýrrar tækni.


Einnig var farið yfir hvernig Síminn hefur nálgast fræðslu- og hæfniþróun í tengslum við gervigreind innan fyrirtækisins. Stemningin var afar góð og sköpuðust líflegar umræður um framtíð vinnustaða, símenntun og mikilvægi þess að starfsfólk fái tækifæri til að þróast með tækninni.


Við þökkum öllum gestum kærlega fyrir komuna og hlökkum til áframhaldandi samtals um fræðslu og gervigreind.