Eftir að hafa verið skilin eftir alein heima í Grýluhelli, í fyrsta skipti í sögu hellisins, þurfa tröllasystkinin Hurðaskellir og Skjóða að vinna sig í gegnum stirt samband sitt til þess að komast að því hvert allir hinir 98 íbúar hellisins hafa farið. Á ferðalaginu sem tekur við læra systkinin nýja hluti um mömmu sína Grýlu, hvernig það kom til að þau urðu þessi jólafjölskylda og hvað fylgir jólatöfrunum. Grýla, að öðrum óvitandi, nema kannski manninum hennar Leppalúða, er einnig að glíma við sömu spurningar á meðan skyldur hennar sem Jólamóðir, verndari töfra jólanna, stangast á við þá tröllskessu sem hún áður var.