Gleðilegt sumar og opnunartímar á hátíðisdögum
22. apríl 2026
Næstu hátíðisdaga verður breyttur opnunartími í verslunum Símans. Netspjall Símans verður opið alla daga. Þá er þjónustuverið einnig opið alla daga, eingöngu á netspjalli en ekki í síma.

Sumardagurinn fyrsti (23. apríl)
Það er komið sumar! Við bjóðum ykkur velkomin í verslun okkar í Smáralind á sumardaginn fyrsta frá kl. 12-17. Lokað verður í verslunum í Ármúla og á Akureyri. Netspjallið verður opið frá kl. 11-19. Þá er þjónustuverið einnig opið, eingöngu á netspjalli en ekki í síma.
Laugardaginn 25. apríl – árshátíð starfsmanna
Starfsmenn Símans ætla að eiga gleðilega stund saman á árshátíð, laugardaginn 25. apríl. Verslun okkar í Smáralind verður opin frá kl. 11-17 (lokar fyrr en venjulega). Opið verður í verslun á Akureyri frá kl. 10-14. Netspjallið verður opið frá kl. 11-17.
1. maí
Föstudaginn 1. maí er opið í verslun okkar í Smáralind frá kl. 12-17. Lokað í Ármúla og á Akureyri. Netspjallið verður opið frá kl. 11-19. Þjónustuverið er opið gegnum netspjallið en ekki símleiðis.
Uppstigningardagur (14. maí)
Á uppstigningardag, 14. maí, er opið í verslun okkar í Smáralind frá kl. 12-17. Lokað í Ármúla og á Akureyri. Netspjallið er opið frá kl. 11-19 og þjónustuverið er opið gegnum netspjallið, ekki í síma.

Hér má finna opnunartíma verslana okkar og þjónustuvers.