Ný Harry Potter væntanleg á HBO Max

05. október 2026

Harry Potter snýr aftur á skjáinn í nýrri stórri þáttaröð frá HBO sem verður frumsýnd um jólin 2026. Viðskiptavinir Sjónvarps Símans Premium geta fylgst með ævintýrinu á HBO Max, sem fylgir áskriftinni.

imageHero

Bréfið frá Hogwarts er á leiðinni til áskrifenda Símans. Ný kynslóð leikara tekur við hlutverkum Harrys, Rons og Hermione þegar einn ástsælasti sagnaheimur síðari ára verður færður í sjónvarpsbúning. Fyrsta serían byggir á Harry Potter og viskusteininum og leiðir áhorfendur aftur að upphafi ævintýrisins: að stráknum í skápnum undir stiganum sem kemst að því að hann er galdramaður. Með meiri tíma til að segja söguna gefst færi á að sýna persónur, smáatriði og atburði úr bókunum sem ekki komust að í kvikmyndunum.

Hogwarts opnar dyrnar á ný
Þáttaröðin er ný útfærsla á bókum J.K. Rowling, þar sem kunnuglegur heimur fær nýtt yfirbragð. Ferðin hefst hjá Dursley-fjölskyldunni, áður en Harry kynnist Hagrid, uppgötvar töfraheiminn og stígur um borð í lestina til Hogwarts.

Þar bíða hans vinátta, óvæntar hættur og leyndardómar sem tengjast bæði fortíð hans og viskusteininum. Fyrir þá sem þekkja sögurnar verður þetta endurfundur við gamlar uppáhaldspersónur. Fyrir nýja áhorfendur er þetta tækifæri til að kynnast ævintýrinu frá upphafi.

Ævintýrið fylgir Premium
Viðskiptavinir Sjónvarps Símans Premium fá aðgang að HBO Max með áskriftinni og geta því fylgst með nýju Harry Potter þáttaröðinni þegar hún verður frumsýnd. Virkja þarf HBO Max-aðganginn og horfa í appi eða á vef HBO Max.