Risa haust framundan í Sjónvarpi Símans Premium
26. ágúst 2026
Það verður nóg um að vera í Sjónvarpi Símans Premium í haust þegar fjölbreytt úrval nýrra íslenskra þáttaraða hefja göngu sína.
Gamanþættir, glæpasögur og sönn sakamál verða fremst í flokki í dagskránni okkar og um leið bætist BritTV við framboðið, ný streymisveita tileinkuð vönduðu bresku sjónvarpsefni.

Nýjar íslenskar þáttaraðir
Boltamömmur eru nýir gamanþættir sem segja frá nýfráskilinni konu sem hellir sér af lífi og sál í heim yngri flokka fótboltans. Þar reynir á foreldrasamskipti, keppnisskap og tilfinningar þegar metnaðurinn fyrir hönd barnanna fer stundum aðeins fram úr hófi.
Í haust verður einnig frumsýnd Elma, ný íslensk þáttaröð byggð á glæpasögunni Marrið í stiganum. Þar færist íslensk glæpasaga yfir í sjónvarp og geta áhorfendur átt von á spennu og leyndardómum þar sem fortíðin er aldrei langt undan. Í versta falli bætist einnig í hóp nýrra íslenskra þátta í Sjónvarpi Símans Premium í haust og verður.
Sigursteinn Másson snýr jafnframt aftur með Sönn sakamál, þar sem hann kafar ofan í íslensk sakamál og sögurnar á bak við þau. Málin eru skoðuð frá ýmsum hliðum og leitast við að varpa nýju ljósi á atburði sem hafa vakið mikla athygli í Íslensku samfélagi.
“Það er alltaf mikil tilhlökkun þegar sjónvarpshaustið fer af stað og í ár er eitt stærsta og fjölbreyttasta haust Sjónvarps Símans Premium til þessa. Nýja efnisveitan BritTV bætist við framboðið, öflugt samstarf okkar við HBO Max, Hayu og Paramount heldur áfram og við frumsýnum þrjár nýjar íslenskar leiknar þáttaraðir. Áskrifendur eiga von á nýju gæðaefni í hverri viku og svo tekur einn stærsti sjónvarpsviðburður ársins við um jólin þegar nýja Harry Potter þáttaröðin kemur á HBO Max.” segir Birkir Ágústsson, framkvæmdarstjóri miðla.

BritTV hefur göngu sína
Ein stærsta nýjung haustsins er BritTV, ný streymisveita sem verður aðgengileg hjá Símanum og mun fylgja með áskrift að Sjónvarpi Símans Premium. BritTV færir áhorfendum á einum stað úrval af vönduðum breskum þáttum, allt frá margverðlaunuðum glæpa- og spennuþáttum yfir í breska gamanþætti sem hafa skapað sér sess í sjónvarpssögunni.
Meðal þekktustu þáttanna sem verða í boði eru allar fimm þáttaraðirnar af Luther, með Idris Elba í hlutverki rannsóknarlögreglumannsins John Luther, ásamt The Missing og framhaldsþáttunum Baptiste.
Þar verður einnig að finna breska gamanþætti á borð við The Office, þar á meðal jólasérþættina, og þrjár þáttaraðirnar af Little Britain.
Eitthvað fyrir alla í haust
Með nýjum íslenskum þáttum og komu BritTV verður haustið fjölbreytt í Sjónvarpi Símans Premium. Hvort sem stemningin er fyrir íslensku drama, gamanþáttum, sönnum sakamálum, eða breskri spennu ættu flestir að finna eitthvað við sitt hæfi.