HBO Max hlýtur flestar tilnefningar

14. júlí 2026

HBO Max fékk flestar Emmy-tilnefningar allra streymisveitna árið 2026, sem styrkir virði samstarfsins við Símann og stöðu Sjónvarps Símans Premium sem bestu íslensku sjónvarpsveitunnar.

imageHero

HBO Max hlaut flestar tilnefningar allra sjónvarpsstöðva og streymisveitna þegar tilnefningar til Emmy-verðlaunanna 2026 voru kynntar. Alls fékk efni undir merkjum HBO 122 tilnefningar.


Árangurinn undirstrikar áframhaldandi styrk HBO Max á sviði vandaðs leikins sjónvarpsefnis. Fyrir Símann skiptir það sérstaklega máli þar sem fullur aðgangur að HBO Max fylgir Sjónvarpi Símans Premium.


Læknadrama og gamanþáttur

The Pitt fékk flestar tilnefningar einstakra sjónvarpsþátta, eða 25 talsins. Gamanþáttaröðin Hacks fylgdi fast á eftir með 24 tilnefningar og setti um leið nýtt met yfir flestar Emmy-tilnefningar gamanþáttaraðar á einu ári.


Þættirnir tveir fengu því samtals 49 tilnefningar í helstu flokkum, meðal annars fyrir leik, leikstjórn, handritsgerð og tæknilega útfærslu en HBO Max fékk alls 21 tilnefningu fyrir frumsamið sjónvarpsefni, sem sýnir breiddina í efnisframboði streymisveitunnar.